Úratrygging
Úratrygging er víðtæk trygging ætluð einstaklingum sem vilja sértyggja úrin sín fyrir óvæntum tjónum.
Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Úratrygging er víðtæk trygging ætluð einstaklingum sem vilja sértyggja úrin sín fyrir óvæntum tjónum.
Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Tjón á tryggðum úri af völdum skyndilegra og óvæntra óhappa.
Tjón sem orsakast af snöggum hita og rakabreytingum.
Tjón sem stafa af eðlilegu sliti, litabreytingu, hrörnun yfir lengri tíma, ryði, tæringu, rotnun, aflögun, galla, rangri samsetningu, ónógu viðhaldi og innri bilunum.
Tjón sem valdið er af bakteríum, myglu, skordýrum eða meindýrum.
Tjón sem orsakast af hreinsun, viðgerðum, endurslípun, breytingum, endurgerð eða endurbótum.
Tjón sem stafar af innri galla, efnisgalla, smíðagalla, framleiðslugalla eða bilun í hlutnum sjálfum.
Tjón sem verður vegna notkunar á tryggðu úri umfram uppgefið vatnsþol framleiðanda á þeim tíma sem tjónið varð, nema tryggður sýni fram á að tjónið verði rakið til annarra orsaka en þeirrar notkunar.
Tjón sem stafar af segulmögnun ganghluta.
Aukakostnað umfram beinan viðgerðarkostnað á skemmdu úri, svo sem kostnað við hreinsun, smurningu, yfirferð og ábyrgðareftirlit.