Árs- og samfélagsskýrsla
Aðalfundir Varðar voru haldnir 19. mars 2026 og hér má finna fjárhagslegar og ófjárhagslegar upplýsingar í tengslum við ársuppgjör félagsins.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Aðalfundir Varðar voru haldnir 19. mars 2026 og hér má finna fjárhagslegar og ófjárhagslegar upplýsingar í tengslum við ársuppgjör félagsins.

Það er hlutverk Varðar að vera til staðar fyrir samfélagið og veita fólki hugarró með nýrri og skapandi hugsun. Í því skyni leggjum við rækt við vöruþróun og gerðum á árinu margvíslegar breytingar á tryggingaskilmálum og kynntum nýjungar í tryggingunum okkar. Þar vil ég helst nefna meðgönguvernd, sem er nú hluti af öllum sjúkdómatryggingum Varðar og ofbeldisvernd, sem er orðin hluti af heimilistryggingum og starfsmannatrygginum fyrirtækja. Með þessum nýjungum mætum við þörf sem er til staðar en hefur ekki fallið undir tryggingaskilmála hingað til.
Rekstur Varðar gekk vel á árinu 2025 og annað árið í röð var samsett hlutfall undir 90%. Vátryggingatekjur jukust umfram markaðinn eins og þær hafa gert óslitið frá árinu 2017. Afkoma af fjárfestingarstarfsemi félagsins litaðist af þungum hlutabréfamarkaði á árinu, en heildarafkoma ársins var ríflega 2 milljarða króna hagnaður og arðsemi eigin fjár 13,7%.
Við erum bjartsýn og munum halda áfram að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu.


Hér má finna ársreikning samstæðunnar Varðar trygginga fyrir árið 2025.

Vörður vinnur að heilindum að sjálfbærnimálum og telur það vera til hagsbóta að birta upplýsingar um samfélagslega þætti rekstursins samhliða ársuppgjöri og hafa þannig jákvæð áhrif á þróun málaflokksins út í samfélagið.

Vörður leggur áherslu á góða stjórnarhætti í allri sinni starfssemi og með góðum stjórnarháttum er lagður grunnur að ábyrgri stjórnun og ákvarðanatöku og með þeim er traust markaðarins gagnvart félaginu aukið.