Aukakostnaðartrygging
Bætir sannanlegan og óhjákvæmilegan aukakostnað sem fellur til þegar atvinnuhúsnæði eða lausafé verður ónothæft vegna bótaskylds bruna-, vatns- eða innbrotstjóns.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Bætir sannanlegan og óhjákvæmilegan aukakostnað sem fellur til þegar atvinnuhúsnæði eða lausafé verður ónothæft vegna bótaskylds bruna-, vatns- eða innbrotstjóns.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur meira skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Leigu á bráðabirgðahúsnæði og kostnað við að gera það nothæft fyrir starfsemina,
Flutning, uppsetningu og tímabundna geymslu lausafjár, vörulagers og gagna,
Leigu á lausafé, vélum, tækjum eða öðrum búnaði í stað þess sem varð fyrir tjóni,
Kostnað við að flytja starfsemina á annan stað og til baka að nýju,
Kostnað við að tilkynna viðskiptavinum um breyttan starfsstað eða breytta þjónustu.
Rekstrartap, þ.m.t. tapaða framlegð, tapaðan hagnað, viðskiptavild, sektir, dagsektir, févíti eða annað óbeint tjón.
Kostnað sem fæst bættur úr annarri tryggingu tryggingartaka.
Kostnað við viðgerð, endurnýjun, endurbætur eða enduruppbyggingu , sem og kostnað við björgun, hreinsun eða förgun.
Aukinn kostnað sem hlýst af verkbanni, verkfalli, vélarbilun, rekstrartöfum vegna endurbóta, stækkunar, fyrirmæla hins opinbera eða sambærilegra atvika.
Aukinn kostnað sem hlýst af fjármagnsskorti tryggðs eða af því að tryggður dregur óhæfilega að ráðast í þær ráðstafanir sem þarf til að koma starfseminni í rekstrarhæft ástand.
Kostnað sem tryggður hefði hvort sem er orðið fyrir þótt bótaskylt atvik hefði ekki orðið.










Það er mikilvægt að hafa réttar tryggingar fyrir fyrirtækið, hvort sem það á við um starfsfólkið þitt, starfsemina eða búnaðinn.
Við vinnum náið með fyrirtækjum okkar og pössum upp á það með þeim að tryggingarnar endurspegli þarfir rekstrarins á hverjum tíma. Það gerum við með því að skilja þarfir þeirra, vera til staðar og auðvelda þeim tryggingaviðskipti.