
Skemmtibátatrygging
Skemmtibátatrygging er fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem eiga skemmtibáta sem ýmist eru notaðir til einkanota eða í atvinnuskyni.
Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.

Skemmtibátatrygging er fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem eiga skemmtibáta sem ýmist eru notaðir til einkanota eða í atvinnuskyni.
Tryggingamál getur verið flókið – en það þarf ekki að vera þannig. Til að gera þetta einfaldara og skýrara höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem þú getur skoðað samhliða skilmálunum.
Íslendingar njóta þess í auknum mæli að sigla á skemmtibátum og stunda aðra afþreyingu á sjó. Þótt slíkar ferðir séu yfirleitt ánægjulegar geta aðstæður breyst hratt og því er mikilvægt að huga vel að öryggi áður en lagt er af stað. Góður öryggisbúnaður, skýr ferðaáætlun og aðgangur að áreiðanlegum upplýsingum geta skipt sköpum ef óvænt atvik koma upp.










Við vitum hversu mikil áhrif slys og óhöpp geta haft á daglegan rekstur fyrirtækja. Tjónaþjónustan okkar er til staðar allan sólarhringinn og veitir skjóta og persónulega afgreiðslu þegar fyrirtækið þarf á henni að halda.
Við setjum forvarnir í forgang og leggjum áherslu á faglegt samstarf við fyrirtæki og stofnanir í öryggis- og forvarnarmálum. Reynslan sýnir að góð öryggismenning kemur í veg fyrir slys og óhöpp, og dregur úr óvissu í rekstri.
Navoa er íslenskt app sem hefur verið þróað til að auka öryggi sjófarenda innan farsímasambands við Íslandsstrendur.

Það er mikilvægt að hafa réttar tryggingar fyrir fyrirtækið, hvort sem það á við um starfsfólkið þitt, starfsemina eða búnaðinn.
Við vinnum náið með fyrirtækjum okkar og pössum upp á það með þeim að tryggingarnar endurspegli þarfir rekstrarins á hverjum tíma. Það gerum við með því að skilja þarfir þeirra, vera til staðar og auðvelda þeim tryggingaviðskipti.
Skaðabótaskyldu eiganda, samkvæmt íslenskum siglingalögum, sem er bein afleiðing tjóns, sem báturinn hefur valdið með siglingu sinni, hvort sem um er að ræða munatjón eða líkamstjón.
Kostnað við að fjarlægja flak bátsins.
Skaðabótakröfu frá starfsmönnum eiganda eða útgerðarmanns.
Skemmdir á munum sem tryggður hefur að láni, á leigu, til geymslu, sölu, flutnings eða eru af öðrum ástæðum í vörslu hans, þar á meðal munir, sem tryggður hefur tekið í heimildarleysi.
Sektir og önnur refsilög.
Óbeint tjón, svo sem aflatjón og kostnað vegna tafa
Altjón farist báturinn.
Altjón verði báturinn fyrir svo miklum skemmdum að kostnaður við að bjarga honum og gera við nemur hærri fjárhæð en kemur fram á skírteini.
Altjón týnist báturinn eða hverfur og ekki hefur til að spurst að liðnum þremur mánuðum frá því félaginu var tilkynnt um hvarfið.
Tjón vegna eldsvoða, sprengingar eða eldingar.
Tjón vegna áreksturs á grunn, strands eða þess að báturinn sekkur.
Tjón vegna óveðurs, jarðskjálfta, snjóflóða og aurskriða.
Tjón af völdum brotsjós.
Tjón vegna ásiglingu á mannvirki eða rekaldin.
Tjón ef báturinn losnar frá eða sekkur við höfn eða bauju.
Tjón vegna innbrots, þjófnaðar eða skemmdarverka.
Tjón vegna skyndilegrar og óvæntrar óhappatilviljunar við sjósetningu eða upptöku, svo og í flutningi að og frá geymslustað innan sama lögsagnarumdæmis.
Félagið bætir kostnað við björgun sem og eðlilegan kostnað við ráðstafanir til að varna tjóni.
Þátttöku í sameiginlegu sjótjóni.
Tjón á bátnum í uppsátri af völdum bruna, óveðri, foks, snjóflóða, aurskriðna, innbrots, skemmdarverka og eldgosa.
Tjón á vél, drifbúnaði, rafkerfi, staðsetningartækjum, fjarskiptatækjum, radar, fiskileitartækjum, línuvindum og öðrum sambærilegum búnaði.
Tjón á möstrum, seglum eða reiða við skipulagða siglingakeppni.
Skemmdir af ófullnægjandi viðhaldi, fúa, þreytu, tæringu, sliti eða sambærilegum orsökum. Sama gildir um tjón, sem rakið verður til hönnunargalla.
Skemmdir á þeim hlutum bátsins sem efnisgalli, smíðisgalli eða viðgerðargalli er á.
Tjón er stafar af því að skipið var óhaffært er það lét síðast úr höfn, var ófullnægjandi útbúið eða mannað, hafði ekki nauðsynleg skipsskjöl eða var ekki tryggilega hlaðið.
Óbeint tjón svo sem aflatjón og kostnað vegna tafa.
Tjón af völdum samsláttar við hafnarmannvirki, annan bát eða skip nema um sé að ræða beina ásiglingu.
Tjón á fiskikössum, afla og veiðarfærum, þ.á.m. varpa ásamt hlerum og vírum, nemum og sendum sem festir eru við veiðarfæri. Sama gildir um net, línur, færi, belgi, baujur og bólfæri og farangur skipverja.
Tjón á skipi eða bát sem er leigður, hvort sem um er að ræða tímabundinn leigusamning eða leigusamning til tiltekinnar ferðar, nema slíkt sé samþykkt af Verði og áritað á tryggingarskírteinið.
Tjón á skipi eða bát sem notaður er til farþega- eða farmflutninga nema slíkt sé samþykkt af félaginu og áritað á skírteinið.
Tjón á aðalvél bátsins.
Tjón vegna galla.
Tjón vegna eðlilegrar notkunar.
Tjón vegna ófullnægjandi viðhalds.
Tjón vegna rýrnunar.
Tjón sem verður við flutning.
Tjón vegna of mikils álags.
Tjón vegna breytinga sem eru ekki í samræmi við fyrirmæli framleiðenda.
Tjón vegna þess að útblástur vélar er tengdur við sjókælingu.
Óbeint tjón vátryggðs, svo sem aflatjón og kostnað vegna tafa.