Fartölvutrygging
Fartölvutrygging tekur til fartölvu og fylgihluta hennar og bætir tjón af völdum skyndilegra og ófyrirsjáanlegra óhappa í skóla, á ferðalögum, vinnustað eða heima.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Fartölvutrygging tekur til fartölvu og fylgihluta hennar og bætir tjón af völdum skyndilegra og ófyrirsjáanlegra óhappa í skóla, á ferðalögum, vinnustað eða heima.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Tjón vegna skyndilegs og ófyrirsjáanlegs utanaðkomandi atviks sem gerist án vilja vátryggingartaka eða umráðamanns fartölvunnar
Tjón sem orsakast af hita- og/eða rakabreytingum.
Tjón vegna framleiðslu- eða efnisgalla svo og tjón vegna rangra tenginga, rangrar rafspennu eða rangrar samsetningar.
Tjón sem rekja má til eðlilegs slits, ónógs viðhalds svo og tjón sem eingöngu veldur útlitsgalla en rýrir ekki notagildi fartölvunnar.
Tjón vegna tæknilegra bilana, bilana í dagsetningar- eða hugbúnaði, gangtruflana eða titrings á skjámyndum.
Tjón vegna tapaðra eða skemmdra gagna og /eða hugbúnaðar.
Tjón sem seljandi, viðgerðaraðili eða f lutningsaðili ber ábyrgð á samkvæmt samningi eða lögum.
Tjón sem verður ef fartölvan gleymist, týnist, misleggst eða er skilin eftir á almannafæri.