Samstarf um forvarnir
Við setjum forvarnir í forgang og vinnum náið með fyrirtækjum og stofnunum í öryggis- og forvarnarmálum.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Við setjum forvarnir í forgang og vinnum náið með fyrirtækjum og stofnunum í öryggis- og forvarnarmálum.


Reynslan sýnir að góð öryggismenning kemur í veg fyrir slys og óhöpp, og dregur úr óvissu í rekstri.
Við hjá Verði leggjum áherslu á samstarf við okkar viðskiptavini og viljum tryggja að öryggi séu í lagi. Við getum aðstoðað við atriði eins og skipulag öryggismála, atvikaskráningu, eldvarnir, vinnuslys, vinnuvernd og umferðaröryggi. Rétt tryggð og örugg fyrirtæki eru betur í stakk búin til að takast á við skakkaföll.
Ágúst Mogensen er sérfræðingur í forvörnum hjá Verði.
Almenn forvarnarúttekt á starfsstöðvum þar sem farið er yfir vinnuaðstæður og áhættuþætti til að koma í veg fyrir slys og atvik.
Fyrirlestrar fyrir starfsfólk fyrirtækisins þar sem farið er yfir öryggi við vinnu og umferðaröryggi.

Aðstoð og ráðgjöf við áhættumat starfa eins og greiningu á hættum og mótun varúðarráðstafana.

Fyrirtæki fá 30% afslátt af skráningarforritinu ATVIK sem hjálpar við skráningu og eftirlit með atvikum og slysum á skilvirkan hátt.
Árlegir tjónafundir þar sem farið er yfir atvik, slys og forvarnir með það að markmiði að læra af reynslunni og bæta fyrirbyggjandi aðgerðir.
Sérsniðin forvarnarþjónusta sem byggir á óskum stjórnenda.


Brunavarnir eru lykilatriði til að tryggja öryggi starsfólks og viðskiptavina.

Vatnstjón er ein algengasta orsök tjóna hjá fyrirtækjum. Huga þarf sérstaklega að votrýmum og hafa sérstakan vara á veturna þegar það byrjar að frysta.