Ferðaþjónusta
Ferðaþjónusta er fjölbreytt og skapandi atvinnugrein og hefur lengi verið burðarás íslensks efnahagslífs. Við þekkjum þarfirnar vel og bjóðum upp á allar tryggingar sem fyrirtæki í ferðaþjónustu þurfa á að halda.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Ferðaþjónusta er fjölbreytt og skapandi atvinnugrein og hefur lengi verið burðarás íslensks efnahagslífs. Við þekkjum þarfirnar vel og bjóðum upp á allar tryggingar sem fyrirtæki í ferðaþjónustu þurfa á að halda.


Það er mikilvægt að hafa réttar tryggingar fyrir fyrirtækið, hvort sem það á við um starfsfólkið þitt, starfsemina eða búnaðinn.
Við vinnum náið með fyrirtækjum okkar og pössum upp á það með þeim að tryggingarnar endurspegli þarfir rekstrarins á hverjum tíma. Það gerum við með því að skilja þarfir þeirra, vera til staðar og auðvelda þeim tryggingaviðskipti.

Tryggir atvinnurekanda fyrir skaðabótaábyrgð sem á hann kann að falla.
Tryggir atvinnurekendum sem framleiða og dreifa vörum fyrir skaðabótaábyrg sem á hann kann að falla.
Greiðir bætur til vátryggðs vegna slyss sem viðkomandi verður fyrir í starfi hjá vinnuveitanda.
Bætir tjón sem verður vegna vatns, bruna eða innbrots.
Bætir tjón á einstökum dýrum hlutum og gildir hvar sem er í heiminum.
Bætir rekstrartjón sem getur orðið vegna samdráttar í kjölfar tjóns.
Bætir aukakostnað sem vátryggður verður fyrir ef atvinnuhúsnæði verður ónothæft.

Bætir almennt fjártjón sem tryggður kann að valda viðskiptavinum sínum við störf sín.
Tryggir fyrirtæki sem sinna farþegaflutningum með skipum fyrir skaðabótaábyrgð sem á þau kunna að falla í samræmi við ákvæði siglingalaga.
Greiðir bætur vegna tímabundinnar og varanlegarar örorku í kjölfar slyss.
Greiðir bætur vegna tímabundinnar og varanlegrar örorku.
Bætir tjón vegna slysa eða óvæntra veikinda á vinnuferðum erlendis.
Lögboðin trygging húseigna sem bætir tjón vegna eldsvoða.
Víðtæk og alhliða vernd fyrir atvinnuhúsnæði og aðrar fasteignir fyrirtækja.
Ábyrgðartrygging ökutækis og slysatrygging ökumanns og eiganda.
Valfrjáls viðbót við ökutækjatryggingu sem bætir skemmdir á eigin ökutæki.
Við vitum hversu mikil áhrif slys og óhöpp geta haft á daglegan rekstur fyrirtækja. Tjónaþjónustan okkar er til staðar allan sólarhringinn og veitir skjóta og persónulega afgreiðslu þegar fyrirtækið þarf á henni að halda.
Við setjum forvarnir í forgang og leggjum áherslu á faglegt samstarf við fyrirtæki og stofnanir í öryggis- og forvarnarmálum. Reynslan sýnir að góð öryggismenning kemur í veg fyrir slys og óhöpp, og dregur úr óvissu í rekstri.









Vörður er hluti af Arion. Fyrirtæki í viðskiptum við Vörð hafa þar með greiðari aðgang að alhliða fjármálaþjónustu. Gildir þá einu hvort um er að ræða stór eða lítil fyrirtæki, einföld verkefni eða viðamikil. Starfsfólk Varðar og Arion hefur víðtæka þekkingu og reynslu enda þjónustar samstæðan tugir þúsunda fyrirtækja og stofnana.
Það getur skipt sköpum fyrir fyrirtæki að njóta öflugrar tryggingaverndar og fjölbreyttrar fjármálaþjónustu undir sama þaki, og það gerir reksturinn auðveldari og skilvirkari.
