Slysatrygging
Slysatrygging veitir fjárhagslegt öryggi fyrir þá sem verða fyrir tímabundinni eða varanlegri örorku í kjölfar slyss – hvort sem það gerist í vinnu eða í frítíma.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Slysatrygging veitir fjárhagslegt öryggi fyrir þá sem verða fyrir tímabundinni eða varanlegri örorku í kjölfar slyss – hvort sem það gerist í vinnu eða í frítíma.

Tryggingamál getur verið flókið – en það þarf ekki að vera þannig. Til að gera þetta einfaldara og skýrara höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem þú getur skoðað samhliða skilmálunum.
Tímabundinn missis starfsorku vegna slyss.
Varanlega læknisfræðilega örorku vegna slyss.
Dánarbætur vegna slyss.
Bætur vegna tannbrots sem rekja má til slyss.
Slys sem valda eingöngu lýti.
Tannbrot sem verður þegar vátryggður matast.
Slys sem verða við keppni eða við æfingar til undirbúnings fyrir keppni í hvers konar íþróttum.
Slys sem verða við fjallaklifur, bjargsig, hnefaleika, hvers konar glímu- og bardagaíþróttir, akstursíþróttir, drekaflug, fallhlífarstökk, froskköfun og teygjustökk.
Slys, sem verða í hvers kyns flugi, nema vátryggður sé farþegi í áætlunar- eða leiguflugi á vegum aðila, sem hefur tilskilin leyfi hlutaðeigandi flugmálayfirvalda
Slys vegna ljósabaða, lækningameðferðar, skurðaðgerðar eða lyfjanotkunar, nema meðferðin sé að læknisráði vegna bótaskylds slyss og gerð á viðurkenndri heilbrigðisstofnun.
Slys, sem orsakast af matareitrun, drykkjareitrun og neyslu eitur- eða nautnalyfja.
Slys, vegna eitraðra lofttegunda, nema það hafi orðið skyndilega og án vilja vátryggðs.
Tjón af völdum sýkingar af skordýrabiti eða stungu.
Tjón sem stafa af brjósklosi, þursabiti (lumago ischias), slitgigt eða hvers kyns öðrum gigtarsjúkdómum.
Slys, sem beint eða óbeint orsakast af blindu, mikilli nær- eða fjarsýni, sjóndepru, heyrnardeyfð, lömun, bæklun, flogaveiki, slagi, sykursýki eða öðrum alvarlegum sjúkdómum og/eða sjúkdómseinkennum.
Fyrst þú ert að kynna þér líf- og heilsutryggingar þá gætir þú jafnframt haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Styður við fjölskyldur komi til andláts og eykur þannig lífsgæði og fjárhagslegt öryggi þeirra sem eftir standa.

Tryggir fjárhagslegt öryggi einstaklinga og fjölskyldna komi til alvarlegra veikinda.

Heimilisvernd er samsett trygging fyrir fjölskylduna og innbúið. Hægt er að velja um fjórar mismunandi tryggingar allt eftir þínum þörfum.