
Tryggingar og fjármál í einu teymi
Vörður er hluti af Arion. Fyrirtæki í viðskiptum við okkur hafa þar með greiðari aðgang að alhliða fjármálaþjónustu. Gildir þá einu hvort um er að ræða stór eða lítil fyrirtæki, einföld verkefni eða viðamikil.
Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.

Vörður er hluti af Arion. Fyrirtæki í viðskiptum við okkur hafa þar með greiðari aðgang að alhliða fjármálaþjónustu. Gildir þá einu hvort um er að ræða stór eða lítil fyrirtæki, einföld verkefni eða viðamikil.
Það getur skipt sköpum fyrir fyrirtæki að njóta öflugrar tryggingaverndar og fjölbreyttrar fjármálaþjónustu undir sama þaki, og það gerir reksturinn auðveldari og skilvirkari.
Markmið okkar er einfalt: Að styðja við uppbyggingu öflugra fyrirtækja sem auðga íslenskt samfélag og atvinnulíf. Það gerum við með því að standa með viðskiptavinum okkar, hafa skilning á þörfum þeirra og auðvelda þeim banka- og tryggingaviðskipti.

Það er ekki áhættulaust að vinna á fiskmiðum sem geta verið jafn kröfuhörð og þau eru gjöful.

Verslun og þjónusta er ein helsta atvinnugrein landsins og gegnir lykilhlutverki í daglegu lífi okkar allra.

Bændur og búalið þurfa ekki síður tryggingar en aðrar starfsstéttir enda spyrja slys og óhöpp hvorki um stétt né stöðu.

Tryggingaþörf fyrirtækja í heilbrigðis- og sérfræðiþjónustu er margvísleg og fer eftir eðli starfseminnar og umfangi.

Ferðaþjónusta er fjölbreytt og skapandi atvinnugrein og hefur lengi verið burðarás íslensks efnahagslífs.

Fyrirtæki í framleiðslu og iðnaði eru afar fjölbreytt, allt frá smærri verkstæðum til stórra iðnfyrirtækja með umfangsmikla starfsemi.
Við setjum forvarnir í forgang og leggjum áherslu á faglegt samstarf við fyrirtæki og stofnanir í öryggis- og forvarnarmálum. Reynslan sýnir að góð öryggismenning kemur í veg fyrir slys og óhöpp og dregur úr óvissu í rekstri.
Við vitum hversu mikil áhrif slys og óhöpp geta haft á daglegan rekstur fyrirtækja. Tjónaþjónustan okkar er til staðar allan sólarhringinn og veitir skjóta og persónulega afgreiðslu þegar fyrirtækið þarf á henni að halda.

Við höfum yfirgripsmikla reynslu af því að vinna með fólki sem ber ábyrgð á fjármálum fyrirtækjanna í landinu og útvegum lausnir sem spara tíma, bæta yfirsýn og einfalda dagleg störf.
Í Arion appinu finnur þú fjölbreyttar lausnir sem henta fyrirtækjum og gera líf fjármálastjórans einfaldara og skilvirkara.








