Landbúnaður
Bændur og búalið þurfa ekki síður tryggingar en aðrar starfstéttir enda spyrja slys og óhöpp hvorki um stétt né stöðu.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Bændur og búalið þurfa ekki síður tryggingar en aðrar starfstéttir enda spyrja slys og óhöpp hvorki um stétt né stöðu.


Það er mikilvægt að hafa réttar tryggingar fyrir fyrirtækið, hvort sem það á við um starfsfólkið þitt, starfsemina eða búnaðinn.
Við vinnum náið með fyrirtækjum okkar og pössum upp á það með þeim að tryggingarnar endurspegli þarfir rekstrarins á hverjum tíma. Það gerum við með því að skilja þarfir þeirra, vera til staðar og auðvelda þeim tryggingaviðskipti.

Tryggir atvinnurekanda fyrir skaðabótaábyrgð sem á hann kann að falla.
Tryggir atvinnurekendum sem framleiða og dreifa vörum fyrir skaðabótaábyrg sem á hann kann að falla.
Greiðir bætur til vátryggðs vegna slyss sem viðkomandi verður fyrir í starfi hjá vinnuveitanda.
Bætir tjón á búfé og áhöldum, inniheldur ábyrgðartryggingu og valkvæða rekstrarstöðvunartryggingu.
Trygging ætluð þeim sé leggja stund á hefðbundna yltræktarstarfsemi í gróðurhúsum.
Bætir tjón sem verður vegna vatns, bruna eða innbrots.
Bætir tjón á einstökum dýrum hlutum og gildir hvar sem er í heiminum.
Bætir rekstrartjón sem getur orðið vegna samdráttar í kjölfar tjóns.
Bætir aukakostnað sem vátryggður verður fyrir ef atvinnuhúsnæði verður ónothæft.

Greiðir bætur vegna tímabundinnar og varanlegrar örorku í kjölfar slyss.
Greiðir bætur vegna tímabundinnar og varanlegrar örorku í kjölfar slysa eða sjúkdóma.
Lögboðin trygging húseigna sem bætir tjón vegna eldsvoða.
Víðtæk og alhliða vernd fyrir atvinnuhúsnæði og aðrar fasteignir fyrirtækja.
Foktrygging bætir tjón á húsi eða húshluta, sem verður af völdum óveðurs.
Tekur til tjóna sem geta orðið á vörum sem geymdar eru í frysti- eða kæligeymslum.
Tekur til skyndilegra, óvæntra og sýnilegra tjóna sem verða á tryggðu rafeindatæki.
Bætir rekstrartjón sem getur orðið vegna samdráttar í vörusölu eða þjónustu í kjölfar vélbilunar.
Ábyrgðartrygging ökutækis og slysatrygging ökumanns og eiganda.
Valfrjáls viðbót við ökutækjatryggingu sem bætir skemmdir á eigin ökutæki.
Tryggingin tekur til skaðabótaábyrgðar utan samninga
bætir tjón á tryggðri vinnuvél af völdum skyndilegra og óvæntra, utanaðkomandi atvika.
Sérsniðin trygging fyrir eftirvagna aðra en ferðavagna, þ.e. aðra vagna en hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna og ferðapallhýsi (e. camper).
Við vitum hversu mikil áhrif slys og óhöpp geta haft á daglegan rekstur fyrirtækja. Tjónaþjónustan okkar er til staðar allan sólarhringinn og veitir skjóta og persónulega afgreiðslu þegar fyrirtækið þarf á henni að halda.
Við setjum forvarnir í forgang og leggjum áherslu á faglegt samstarf við fyrirtæki og stofnanir í öryggis- og forvarnarmálum. Reynslan sýnir að góð öryggismenning kemur í veg fyrir slys og óhöpp, og dregur úr óvissu í rekstri.









Vörður er hluti af Arion. Fyrirtæki í viðskiptum við Vörð hafa þar með greiðari aðgang að alhliða fjármálaþjónustu. Gildir þá einu hvort um er að ræða stór eða lítil fyrirtæki, einföld verkefni eða viðamikil. Starfsfólk Varðar og Arion hefur víðtæka þekkingu og reynslu enda þjónustar samstæðan tugir þúsunda fyrirtækja og stofnana.
Það getur skipt sköpum fyrir fyrirtæki að njóta öflugrar tryggingaverndar og fjölbreyttrar fjármálaþjónustu undir sama þaki, og það gerir reksturinn auðveldari og skilvirkari.
