06.10.2026
Eftir vel heppnuð skyndihjálparnámskeið bætast fleiri við í vor
Í síðustu viku stóð Vörður fyrir fjórum skyndihjálparnámskeiðum í samstarfi við Rauða krossinn. Námskeiðin voru haldin á þremur tungumálum og voru sérstaklega ætluð foreldrum og forráðamönnum ungra barna.
Viðtökurnar voru afar góðar en hátt í 300 manns skráðu sig til leiks. Þátttakendur fengu hagnýta fræðslu og þjálfun í því hvernig bregðast skuli við í neyðartilvikum, þar sem skjót og rétt viðbrögð geta skipt sköpum.
Við hjá Verði erum þakklát fyrir þann mikla áhuga sem námskeiðin vöktu og fyrir ánægjulegt samstarf við Rauða krossinn. Vegna góðrar þátttöku er nú þegar stefnt að því að bjóða upp á fleiri skyndihjálparnámskeið á vormánuðum.
Við hvetjum áhugasama til að fylgjast með á vef og samfélagsmiðlum Varðar þar sem frekari upplýsingar um næstu námskeið verða birtar.