Tjón
Tjón

26.04.2026

For­varnir eru for­senda ár­angurs

Forvarnir eru forsenda árangurs

Í sífellt flóknara rekstrarumhverfi nútímans er ekki lengur nægjanlegt fyrir fyrirtæki að bregðast við vandamálum eftir að þau hafa komið upp. Árangursrík fyrirtæki byggja á forvörnum og sterkri öryggismenningu sem dregur úr eða útilokar áhættu, áður en hún verður að tjóni. Slík nálgun er ekki aðeins siðferðilega rétt heldur einnig fjárhagslega skynsamleg.

Á undan tjónum

Hin klassíska nálgun á öryggi eru mælikvarðar sem byggja á atvikum sem þegar hafa átt sér stað, svo sem slysum, veikindaforföllum eða tjónum. Þó að slík gögn séu gagnleg til að greina hvað fór úrskeiðis, þá er um orðna hluti að ræða. Fyrirtæki sem einblína fyrst og fremst á viðbrögð eru alltaf skrefi á eftir.

Hér koma forvirkir mælikvarðar til sögunnar. Þeir snúa að því að greina og mæla þætti sem hafa áhrif á öryggi áður en eitthvað fer úrskeiðis. Þetta getur til dæmis verið fjöldi öryggisúttekta, reglubundið eigið eldvarnareftirlit, þátttaka starfsfólks í þjálfun, tilkynningar um næstum-slys eða gæði áhættumats. Með því að fylgjast markvisst með slíkum þáttum geta fyrirtæki gripið inn í tímanlega og komið í veg fyrir tjón.

Öflug öryggismenning

Öflug öryggismenning er lykillinn að því að forvirkar aðgerðir verði hluti af daglegum rekstri. Slík menning einkennist af opnum samskiptum, ábyrgð allra starfsmanna og stöðugri leit að umbótum. Starfsfólk þarf að finna að það sé hvatt til að tilkynna hættur og leggja sitt af mörkum til úrbóta – án ótta við refsingu. Þegar öryggi er hluti af sjálfsmynd fyrirtækis, en ekki aðeins verkefni ákveðinnar deildar, verður árangurinn varanlegur.

Það sem oft gleymist í umræðunni er arðsemi öryggis. Fjárfesting í forvörnum skilar sér margfalt til baka. Færri slys þýða minni beinan kostnað vegna skaða, en einnig minni óbeinan kostnað eins og framleiðslutap, orðsporstjón og starfsmannaveltu. Auk þess eykur gott öryggi traust viðskiptavina og gerir fyrirtækin eftirsóknarverðari vinnustaði.

Sérsniðin forvarnarþjónusta Varðar

Fyrirtæki geta verið mislangt komin á öryggisvegferðinni, sum eru á byrjunarreit að koma af stað skipulögðu starfi. Önnur eru lengra komin og þurfa sértækt efni og ráðgjöf. Vörður aðstoðar fyrirtæki á öllum stigum og veitir ráðgjöf um t.d. umferðaröryggi, eldvarnir, vatnsvarnir, innbrotavarnir, og vinnuslys. Samningur er gerður við fyrirtækin og reglulegir forvarnafundir haldnir. Viðskiptavinir okkar fá einnig 30% afslátt af leyfisgjaldi ATVIKS en það er miðlægt atvikaskráningarkerfi sem einfaldar skráningu atvika og bætir yfirsýn í öryggisstjórnun fyrirtækja.

Í grunninn snýst þetta um forgangsröðun. Fyrirtæki sem líta á öryggi sem kostnað eru að kasta krónum fyrir aura. Fyrirtæki sem líta á öryggi sem fjárfestingu og leggja áherslu á forvirkar aðgerðir þau byggja upp sjálfbæran rekstur, sterkari liðsheild og betri framtíð.

Forvarnir eiga ekki að vera valkostur. Þær eru forsenda árangurs og Vörður vill aðstoða fyrirtæki við að vaxa og dafna örugglega.

Ef þú hefur áhuga á að fá ráðgjöf í öryggismálum, ekki hika við að hafa samband við okkur á netfangið forvarnir@vordur.is

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
23. október 2026

Vörður aðalbakhjarl Körfuknattleiksdeildar Hattar

Vörður tryggingar og Körfuknattleiksdeild Hattar hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning. Samkvæmt samningnum verður Vörður aðalbakhjarl deildarinnar og mun heimavöllur Hattar jafnframt bera nafnið Varðarhöllin.

Lesa meira
12. október 2026

Vel sóttur netöryggisviðburður

Vörður hélt vel sóttan netöryggisviðburð þann 8. október síðastliðinn. Fulltrúar fjölda fyrirtækja hlýddu á erindi og tóku þátt í líflegum samræðum.

Lesa meira
7. október 2026

Er skynjari á vaktinni í bú­staðnum?

Að koma að eign sinni á floti er lífsreynsla sem við óskum engum. Leki sem er ekki stöðvaður í tæka tíð getur valdið mjög miklum skaða, ónýtum gólfefnum, vatnsmettuðum innréttingum og veggjum.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð