Tjón
Tjón

03.09.2026

Kol­brún Klara hreppti aðal­vinninginn í ár

Metfjöldi leikja var spilaður í Regluverðinum 2026, golfleik Varðar og Golfsambands Íslands, og yfir 7 þúsund kylfingar skráðu sig til leiks. Þátttakendur spiluðu leikinn 123 þúsund sinnum og 3.400 kylfingar unnu sér inn nafnbótina „Regluvörður 2026“ með því að ná yfir 6 þúsund stigum í einum leik. 

Regluvörður 2026 er ný og endurbætt útgáfa leiksins sem kom út í vor en leikurinn gerir kylfingum kleift að bæta þekkingu sína á golfreglum á skemmtilegan hátt og safna stigum fyrir sig og sinn golfklúbb. 

Dregið var úr hópi þeirra sem unnu sér inn næg stig til að fá nafnbótina „Regluvörður“ og í ár er vinningshafi aðalvinningsins Kolbrún Klara Gísladóttir. Hún fær vikuferð fyrir fjóra til Villaitana á Spáni í samstarfi við Golfskálann, auk Golfverndar frá Verði í eitt ár. 

Ferðafélagarnir sem Kolbrún Klara valdi til að fara með henni til Villaitana á Spáni fá einnig golffatnað frá toppi til táar frá Golfskálanum. 

Golfklúbbur Ísafjarðar sigrar í stigakeppni golfklúbba 

Í ár var einnig keppni  milli golfklúbba um hverjir voru með flesta Regluverði innan sinna raða og það var Golfklúbbur Ísafjarðar sem sigraði með hlutfallslega flesta Regluverði.  

Golfleiknum er jafnframt ætlað að vekja athygli á Golfvernd Varðar, sérsniðinni tryggingu fyrir kylfinga. Hún veitir vernd gegn óvæntum atvikum bæði innan sem utan golfvallar og gerir kylfingum meðal annars kleift að fagna almennilega með hollinu þegar draumahöggið verður að veruleika.  

Vörður er einnig einn af aðalbakhjörlum afrekssjóðsins Forskots, sem hefur það að markmiði að gera afrekskylfingum auðveldara að æfa og keppa við bestu mögulegu skilyrði.  
 
 
Við óskum Kolbrúnu Klöru innilega til hamingju með vinninginn og þakkar um leið öllum þeim sem tóku þátt í Regluverðinum í sumar! 

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
12. október 2026

Vel sóttur netöryggisviðburður

Vörður hélt vel sóttan netöryggisviðburð þann 8. október síðastliðinn. Fulltrúar fjölda fyrirtækja hlýddu á erindi og tóku þátt í líflegum samræðum.

Lesa meira
7. október 2026

Er skynjari á vaktinni í bú­staðnum?

Að koma að eign sinni á floti er lífsreynsla sem við óskum engum. Leki sem er ekki stöðvaður í tæka tíð getur valdið mjög miklum skaða, ónýtum gólfefnum, vatnsmettuðum innréttingum og veggjum.

Lesa meira
6. október 2026

Eftir vel heppnuð skyndihjálparnámskeið bætast fleiri við í vor

Í síðustu viku stóð Vörður fyrir fjórum skyndihjálparnámskeiðum í samstarfi við Rauða krossinn. Námskeiðin voru haldin á þremur tungumálum og voru sérstaklega ætluð foreldrum og forráðamönnum barna.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð