02.09.2026
Mikilvæg skilaboð til foreldra í upphafi skólaárs
Nú eru skólarnir hafnir og þúsundir barna og unglinga á leiðinni í skólann á hverjum morgni. Á sama tíma þyngist morgunumferðin, foreldrar eru stundum á hraðferð og skólalóðir fyllast af bílum og börnum. Við þessi tímamót er mikilvægt að við fullorðna fólkið séum á varðbergi í umferðinni og rifjum upp með börnunum okkar nokkur lykilatriði.
Ástæðan fyrir að við gerum það er að mörg börn slasast í umferðinni ár hvert en í fyrra slösuðust 112 börn, yngri en 14 ára, í umferðinni. Þar af lést eitt barn, 14 slösuðust alvarlega 97 hlutu lítil meiðsli. Af þeim voru 46 í fólksbifreið, 41 á reið- eða rafhjóli, 14 voru fótgangandi, 1 í rútu og 10 með öðrum hætti.
Til að einfalda foreldrum lífið settum við saman viðbót á haustlistann sem fylgir upphafi á nýju skólaári hjá börnum, taska, pennaveski, húfa, vettlingar, og nokkur öryggisatriði áður en haldið er af stað í skólann.
Æfum öruggu leiðina áður en barnið fer eitt af stað í skólann
Fyrstu dagarnir skipta máli. Foreldrar ættu að ganga eða hjóla leiðina með barninu fyrstu dagana og ræða hver sé öruggasta leiðin í skólann. Hvar er best að fara yfir götu? Hvar eru gangbrautir, ljós eða undirgöng? Hvar er umferð þung, hraði mikill eða lýsing léleg? Það er ekki nóg að segja „farðu varlega“. Það þarf að benda barninu á hvað það felur í sér.Hjálmur, ljós og réttur ferðamáti
Hjól, rafhjól og rafhlaupahjól geta verið frábær ferðamáti, en aðeins ef búnaður, hraði og aðstæður eru í lagi. Foreldrar ættu að skoða hjálm, bremsur, ljós og endurskin reglulega og ræða hvar má hjóla, hvar þarf að ganga með hjólið t.d. yfir gangbrautir. Samkvæmt umferðarlögunum þurfa börn að hafa náð 13 ára aldri áður en þau nota rafhlaupahjól og leigur eins og Hopp miða við 18 ára aldur.Tökum heyrnartólin úr umferðinni
Tónlist, símar og skilaboð draga úr athygli. Á leið í skólann þarf barnið að geta hlustað eftir umferð, hjólum, öðrum börnum og leiðbeiningum. Ein einföld regla getur verið að sími og heyrnartól fari ofan í tösku þegar gengið er yfir götur eða farið um fjölmenna staði.Gerum börnin sýnileg áður en myrkrið skellur á
Það er góð regla að setja endurskinsmerki á allan fatnað þegar skólinn hefst því áður en við vitum af er orðið dimmt á morgnanna. Gott er að setja endurskin á skólatösku, jakka, hjól og jafnvel skó. Því meira endurskin sem börnin hafa því líklegra er að ökumaður sjái þau í myrkri og því þarf ekkert að spara endurskinsmerkingarnar. Fyrir unglinga sem er annt um tískustrauma er hægt að kaupa endurskinslímmiða sem hægt er að klippa niður í allskyns form og líma á fatnað og skólatöskur og halda kúlinu.Ræðum reglurnar við börnin
Börn eru oft fljót að læra og því ágæt regla að kanna þekkinguna þeirra þegar búið er að fara yfir helstu umferðarreglur með þeim. Hvar er öruggast að fara yfir? Hvað gerir þú ef bíll stoppar ekki? Hvenær á að leiða hjólið? Hvar má vera á hlaupahjóli? Og auðvitað minna á að vera með hjálminn á höfðinu.
Nokkur góð ráð fyrir okkur fullorðnu
Minnum okkur sjálf á 30 km hverfin
Foreldrar eru ekki aðeins fyrirmyndir barna sinna. Þeir eru líka ökumenn í hverfum annarra barna. Minni hraði gefur ökumanni meiri tíma til að bregðast við og dregur úr líkum á alvarlegum meiðslum ef slys verður. Við skóla á hraðinn að miðast við að mörg ung börn eru á ferð en ekki við það hversu seint við erum á ferðinni.Forðumst að bakka við skólalóðina
Við margar skólalóðir blandast bílar, gangandi börn, hjól og rafhlaupahjól. Þar sem hægt er ætti ökumaður alltaf að velja öruggan stað til að hleypa börnum út, keyra hringakstur og forðast að bakka. Barnið ætti alltaf að fara út gangstéttar megin.Rafbílar eru mjög hljóðlátir svo börnin heyra oft ekki þegar þeir eru nálægt.
Börn læra í umferðarskólanum að líta til beggja hliða og hlusta eftir umferð. Rafbílar og aðrir hljóðlátir bílar geta nálgast án þess að barnið heyri mikið í þeim og því þarf alltaf að horfa líka.Skólabyrjun er sameiginlegt öryggisverkefni
Það er eðlilegt að fjölskyldur hugsi um skólatösku, nesti, stundatöflu og frístundir í upphafi skólaárs. En örugga leiðin í skólann á að vera jafn sjálfsagður hluti af undirbúningnum. Sterkustu skilaboðin eru einföld: hægjum á, æfum leiðina og gerum börnin sýnileg. Þannig verður skólabyrjun ekki aðeins ný byrjun í námi, heldur líka góð byrjun í öryggi.