Tjón
Tjón

01.04.2026

Þjónusta og opn­unar­tím­ar um pásk­ana

Útibú okkar og þjónustuver verða lokuð um páskana, 2. til 6. apríl. Þann 7. apríl verða útibú og þjónustuver opnuð á hefðbundnum tíma.

Við minnum á að á Mínum síðum getur þú fengið allar upplýsingar um þínar tryggingar, séð reikninga og greiðslur, tilkynnt tjón og breytt greiðsluupplýsingum.

Neyðarsími vegna tjóna utan afgreiðslutíma er í síma 514 1099.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
13. nóvember 2026

Truflun á tölvupóstþjónustu

Vegna tæknilegra truflana í þjónustu sem við nýtum hjá Microsoft eigum við í tímabundnum vandræðum með tölvupóstþjónustuna okkar. Truflanirnar kunna einnig að hafa áhrif á aðra þjónustu og kerfi. Áhrifin á tölvupóstþjónustuna felast meðal annars í því að ekki er tryggt að allir tölvupóstar berist til okkar eða skili sér frá okkur til viðtakenda.

Ef þú þarft að tilkynna tjón þá hvetjum við ykkur til að hafa samband við okkur símleiðis til að fylgja beiðninni eftir. Síminn er 514 1000.

Við fylgjumst grannt með stöðunni og vinnum að því að lágmarka áhrif truflananna. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Lesa meira
4. nóvember 2026

Er mynstrið þitt nægi­lega djúpt?

Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum.

Lesa meira
2. nóvember 2026

Vörður og Arion styrkja Reykjalund um þrjár milljónir

Við hjá Verði og Arion banka erum stolt af því að starfa með fjölmörgum framúrskarandi fyrirtækjum um land allt. Í tilefni af viðurkenningu þeirra höfum við á undanförnum árum stutt við mikilvæg samfélagsverkefni í þeirra nafni.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð