Upplýsingar og næstu skref vegna ökutækjatjóns

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.

Hér eru upplýsingar um verkstæði sem eru með samning við félagið og hægt er að velja úr til að láta gera við ökutækið.
Hafðu samband við verkstæðið sem þú velur til að fá tíma fyrir viðgerðarmat. Verkstæðið
skoðar tjónið, tekur myndir, gerir viðgerðarmat og sendir Verði. Við klárum svo mat á umfangi viðgerðar með verkstæðinu og allt er klárt þegar þú mætir með bílinn í viðgerð.
Ef um kaskótjón er að ræða og viðkomandi er ekki í grunni greiðir Vörður ekki fyrir bílaleigubíl meðan á viðgerð stendur. Mörg verkstæði geta séð um að útvega bílaleigubíl.
Ef ökutæki þitt var óökufært og flutt af vettvangi, vinsamlegast hafðu samband við tjónamatsmenn okkar í síma 514-1000 eða netfangið tjon@vordur.is. Þeir munu skoða bílinn við fyrsta tækifæri og vera í sambandi við þig um framhaldið.