Tjónagrunnur
Markmiðið með grunninum er að koma í veg fyrir að vátryggingasvik geti átt sér stað og að bætur séu ofgreiddar.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Markmiðið með grunninum er að koma í veg fyrir að vátryggingasvik geti átt sér stað og að bætur séu ofgreiddar.

Til að koma í veg fyrir tjónasvik komu Samtök fjármálafyrirtækja og Creditinfo að rekstri og vinnslu sérstaks tjónagrunns að norrænni fyrirmynd. Grunnurinn er nýttur til að greina óvenjulegar tjónstilkynningar, s.s. hvort sama tjón hafi fengist greitt út hjá fleiru en einu tryggingafélagi, en slíkt flokkast sem fjársvik ef ekki er um réttmætar ástæður að ræða.
Í grunninn eru skráð þau tjón sem tilkynnt eru til tryggingafélaganna að undanskildum tjónum sem falla undir líf- og sjúkdómatryggingar. Samtök fjármálafyrirtækja eru rekstraraðili tjónagrunnsins en Creditinfo er vinnsluaðili hans.
Þær upplýsingar sem eru skráðar í grunninn eru kennitala tjónþola, númer máls, tegund tryggingar, tegund tjóns, dagsetning tjóns, dagsetning skráningar í grunninn, nafn viðkomandi vátryggingarfélags, staðsetning tjóns og númer hins tryggða, svo sem ef um er að ræða ökutæki.
Hægt er að fá aðgang að yfirliti yfir uppflettingar um sig í grunninum í gegnum þjónustuvef Creditinfo.
Allar tjónatilkynningar eru skráðar í tjónagrunninn, nema þegar um er að ræða líftryggingar, sjúkdómatilkynningar eða tjón sem börn yngri en 15 ára verða fyrir.
Í tjónagrunninum má aðeins skrá ákveðnar grunnupplýsingar um tjónið. Þar má til dæmis skrá nafn tryggingafélagsins, kennitölu þess sem varð fyrir tjóninu, málsnúmer hjá félaginu, tegund tryggingar og tegund tjóns. Einnig má skrá hvenær tjónið átti sér stað, hvenær það var skráð í grunninn, hvar það gerðist og auðkenni þess sem er tryggt, eins og til dæmis skráningarnúmer bíls eða fastanúmer fasteignar.
Það er hins vegar ekki leyfilegt að skrá upplýsingar um heilsufar eða læknisfræðileg atriði, jafnvel þó tjónið tengist líkamstjóni.
Aðeins starfsmenn tryggingafélaga sem vinna við að skrá tjón eða afgreiða tjónamál hafa aðgang að upplýsingunum í tjónagrunninum.
Upplýsingum í tjónagrunninum er eytt þegar þeirra er ekki lengur þörf, en þó í síðasta lagi 10 árum eftir að þær voru skráðar.
Hægt er að sjá hverjir hafa flett upp upplýsingum í tjónagrunninum á „Mínum síðum“ hjá Creditinfo.
Ef fólk hefur spurningar eða vill benda á rangar upplýsingar, á að hafa samband við Creditinfo.
Markmiðið með grunninum er að koma í veg fyrir að vátryggingasvik geti átt sér stað og að bætur séu ofgreiddar. Ekki má nota upplýsingar úr grunninum í markaðslegum né viðskiptalegum tilgangi.