Premía kort
Vörður gefur út ferðatryggingar fyrir kreditkorthafa Arion banka. Mikilvægt er að kynna sér þær tryggingar sem fylgja kortunum áður en lagt er af stað í ferðalag.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Vörður gefur út ferðatryggingar fyrir kreditkorthafa Arion banka. Mikilvægt er að kynna sér þær tryggingar sem fylgja kortunum áður en lagt er af stað í ferðalag.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.

Á Mínum síðum getur þú sótt staðfestingu á ferðatryggingu hvort sem þú ert á leiðinni í ferðalag eða komin af stað í ferðalag.
Varanlega læknisfræðilega örorku vegna slysa sem verða á ferðalagi, þó einungis ef örorka er metin 16% eða hærri.
Dánarbætur vegna slysa sem verða á ferðalagi.
Bætur greiðast eingöngu leiði slysið til andláts eða varanlegrar örorku innan 24 mánaða frá slysdegi.
Látist vátryggður 18 ára eða yngri vegna afleiðinga slyss takmarkast bætur við 10% af hámarksfjárhæð dánarbóta.
Örorku og dánarbætur skerðast árlega um 10% eftir að vátryggður nær 60 ára aldri. Þó aldrei meira en 80%.
Sjúkrakostnað á ferðalagi erlendis þ.m.t. læknis- og sérfræðikostnað, sjúkrahúsvist, lyfjakostnað ásamt kostnaði við sjúkraflutning og flutning jarðneskra leifa vátryggðs.
Kostnað vegna sjúkdóma, veikinda eða slysa sem vátryggður hefur þjáðst af eða notið læknishjálpar og/eða meðferðar á síðustu 6 mánuðum fyrir greiðslu staðfestingargjalds.
Kostnað sem greiddur er samkvæmt gagnkvæmum samningi sem Sjúkratrygging Íslands eru aðilar að.
Kostnað við meðferð eða eftirmeðferð á Íslandi eða í dvalarlandi.
Tjón sem rekja má til þess að vátryggður mátti vænta þess að fæða barn áður en heim kæmi eða ef heimkomudagur var eftir 32. viku meðgöngu.
Tjón sem rekja má til þess að vátryggður ferðast gegn ráðgjöf starfandi læknis eða í þeim tilgangi að leita læknismeðferðferðar erlendis.
Sjúkrareikninga sem berast eftir að tólf mánuðir eru liðnir frá vátryggingaratburði.
Nauðsynleg viðbótarútgjöld vegna heimferðar ef tryggður neyðist til að stytta dvöl sína utanlands vegna andláts, alvarlegs slyss eða skyndilegra veikinda maka, barna, foreldra, systkina eða annarra náinna ættingja sem búsettur er á Íslandi eða dvalarlandi.
Nauðsynleg viðbótarútgjöld vegna heimferðar til Íslands eða dvalarlands ef vátryggður neyðist til að stytta dvöl sína utanlands vegna verulegs eignartjóns á heimili vátryggðs eða í einkafyrirtæki hans.
Félagið greiðir hvorki ónýttan hluta ferðakostnaðar né nýja utanlandsferð í stað þeirrar er rofin var.
Kostnað vegna hvers kyns veikinda eða sjúkdóma sem náinn ættingi þjáðist af, þegar staðfestingargjald var greitt.
Kostnað við heimferð, ef ekki liggur fyrir fram greiddur kostnaður við heimferð.
Ferðakostnað sem greiddur er fyrirfram og ekki fæst endurgreiddur frá öðrum ferðaþjónustuaðilum, ef vátryggður kemst ekki í ferð vegna t.d. slyss, veikinda eða andláts, sem vottað er af lækni.
Forföll vegna hvers kyns veikinda og sjúkdóma, sem vátryggður þjáðist af og var í meðferð vegna, þegar staðfestingargjald var greitt.
Tjón sem stafa beint eða óbeint af tilskipunum stjórnvalda (nema þeim er varða skyldusóttkví).
Tjón sem stafa beint eða óbeint útgjöldum sem ferðaskrifstofu, gistihúsi eða flugfélagi ber að greiða.
Tjón sem stafa af því að vanrækt er að tilkynna ferðaskrifstofu eða þeim aðila sem útvegar flutningsfar eða gistingu að nauðsynlegt hafi reynst að fella ferð niður.
Tjón sem stafa af fjárhagserfiðleikum eða gjaldþroti ferðaskrifstofa og annarra slíkra aðila sem annast farþegaflutninga.
Nauðsynlegan ferða- og dvalarkostnað vegna ættingja eða vinar vátryggðs, sem dvelst hjá eða fylgir vátryggðum heim samkvæmt læknisráði og í samráði við SOS INTERNATIONAL eða félagið, vegna alvarlegs slyss eða veikinda vátryggðs.
Hlutfallslega óafturkræfan ferðakostnaði, fyrir þann hluta ferðarinnar, sem vátryggður getur ekki notað, vegna þess að hann þarf að fara heim eða þarf að liggja á sjúkrahúsi vegna þess að hann hefur orðið alvarlega veikur eða orðið fyrir alvarlegu slysi.
Skriflegt læknisráð, samþykki félagsins og SOS INTERNATIONAL þarf að liggja fyrir.
Ferð sem varir 5 daga eða skemur.
Dagpeninga, kr. 4.800 á dag í allt að 30 daga ef vátryggður liggur á sjúkrahúsi erlendis vegna slyss eða veikinda á ferðalaginu.
Fyrstu tvo daganna sem sjúkrahúsvistin varir.
Tjón vegna barna yngri en 16 ára.
Bætur vegna tafa á ferð á leið á flugvöll þegar almenningssamgöngur falla niður eða seinkun almenningsfaratækis verður til þess að vátryggður missir af flugi eða þegar ökutæki sem vátryggður ferðast með verður óökufært
Kostnað við annarra samgönguleiða að flugvelli.
Kostnað við að draga ökutæki á næsta viðgerðarverkstæði.
Kostnað við gistingu sem vátryggður þarf að kaupa fram að brottför með öðru flugi.
Ferðakostnað sem vátryggður verður fyrir til að komast til áfangastaðar með öðru flugi.
Tafir vegna verkfallsaðgerða sem voru hafnar eða tilkynnt hafði verið um áður en vátryggður greiddi fargjaldið.
Tafir sem stafa af fyrirmælum yfirvalda um stöðvun eða breytingu á opinberum samgöngum.
Tjón sem hlýst af því að vátryggður hefur ekki gefið sér nægan tíma til að komast á flugvöll og þess vegna misst af flugi.
Ekki fæst bætt úr bótalið ef vátryggður kýs að nýta bótarétt vegna ferðatafar.
Bætur þegar vátryggðum er hafnað um sæti vegna yfirbókunar fyrir hverja klst. sem líður frá upphaflega áætluðum tíma flugs og þar til vátryggður fær sæti í öðru flugi, allt að 20 klst.
Fari svo að verkfallsaðgerðir, óhagstæð veðurskilyrði eða vélarbilun valdi töfum á ferðum almenningsfarartækis og það leiði til seinkunar á komutíma vátryggðs til ákvörðunarstaðar greiðast bætur eftir 8 klukkustunda töf.
Dagpeningar greiðast verði vátryggðum rænt á ferðalagi erlendis og haldið í gíslingu.
Bætur eru ekki greiddar ef töf stafar af því að vátryggður hafi ákvarðað ferðatíma í tengiflugi þrengri en lágmörk viðkomandi flugfélags/flugvallar kveða á um og athugasemd er gerð um í farbókun.
Bætir tjón á einkamunum sem greitt hefur verið fyrir með Premía greiðslukorti og á tjónið rætur að rekja til skyndilegs og ófyrirsjáanlegs utanaðkomandi atviks.
Gildir í 30 daga frá kaupum á einkamun.
Tjón sem stafar af eðlilegu sliti, galla, rangri samsetningu eða innri bilunum, svo sem vélrænum bilunum.
Hærri upphæð en 160.000 kr. fyrir einstakan hlut, par eða samstæðu.
Félagið bætir ekki samtímis bætur úr innkaupakaskó og farangurstryggingu eða innkaupatryggingu vegna eins og sama tjóns.
Tjón á fasteignum, innréttingum, bifreiðum, bátum, gæludýrum, plöntum eða matarvöru.
Tjón á peningum, verðbréfum, handritum, frumteikningum, mynt- og frímerkjasöfnum.
Tjón sem verður á einkamunum af völdum bruna, þjófnaðar, innbrots, ráns, skemmdarverka eða flutningsslyss, þó er gerð krafa um að vátryggður gæti fyllsta öryggis við vörslu hins vátryggða farangurs.
Tjón sem verður þegar vátryggður gleymir hlut, skilur eftir eða týnir honum.
Hærri upphæð en 160.000 kr. fyrir einstakan hlut.
Skemmdir sem hljótast af mölflugum, meindýrum, ástandi andrúmslofts, veðráttu eða eðlilegu sliti.
Skemmdir vegna vökva, matvæla eða annarra smitandi efna.
Tjón á frímerkjum, peningum og hvers kyns verðmætum.
Tjón vegna skemmda á töskum í vörslu flugfélags eða annars flutningsaðila.
Fái vátryggður farangur sinn ekki afhentan innan 12 klst. eftir að áfangastað er komið, vegna tafar eða rangrar afgreiðslu, greiðast bætur til kaupa á nauðsynjum fyrir hvern vátryggðan.
Bætur vegna tafa á farangri þegar vátryggður er á heimleið.
Bætur ef töfin stafar af því að vátryggður hafi ákvarðað ferðatíma í tengiflugi þrengri en lágmark viðkomandi flugfélags/flugvallar kveða á um athugasemd er gerð um farbókun.
Líkamstjón eða tjón eða skemmdir á munum er leiðir af bótaskyldri háttsemi vátryggðs.
Tjón vegna notkunar eða umráða vélknúinna ökutækja, ábyrgðar á dýrum sem tilheyra vátryggðum eða ábyrgðar vegna eignarhalds á landi og byggingum.
Tjón vegna notkunar skotvopna, fallhlífarstökks, svifflugs, svifdrekaflugs, loftbelgsflugs, skipulagðra íþrótta og atvinnu, sem talist getur lífshættuleg.
Tjón á hlutum í eigu þriðja aðila sem skemmast eða týnast á meðan þeir eru í vörslu vátryggðs.
Tjón sem verður á bílaleigubíl þar sem korthafi er skráður aðalökumaður (1 ökumaður) í eigu viðurkennds bílaleigufyrirtækis vegna eftirfarandi atvika:
a. skemmda á ökutækinu sjálfu og eðlilegum aukahlutum þess af völdum eldingar, eldsvoða, sprenginga, árekstrar, áaksturs, veltu eða útafaksturs.
b. vegna þjófnaðar og skemmdarverka á ökutækinu sjálfu.
Skaðabótakröfur sem kunna að falla á vátryggða, sem nafngreindir er í bílaleigusamningi, ef krafan fer umfram vátryggingarfjárhæð eða sjálfsábyrgð hinnar lögbundnu tryggingar.
Ef vátryggður hefur ekki réttindi til að aka ökutækinu eða hefur misst réttindi til að aka því.
Tjón vegna kappaksturs, aksturskeppni, reynsluaksturs eða æfinga fyrir slíkan akstur.
Akstur þar sem bannað er að aka ökutæki, akstur utan vega t.d. á túnum, engjum, á ís, yfir óbrúaðar ár eða læki eða um aðrar vegleysur.
Notkun ökutækis sem brýtur í bága við skilmála bílaleigusamnings og ákvæði skilmála.
Skemmdir vegna efnisgalla, hönnunargalla, smíðisgalla, viðgerðargalla eða bilunar ökutækisins.
Tjón vegna eðlilegs slits eða ófullnægjandi viðhalds bílaleigubílsins.
Golfbúnaðartrygging - Skyndilegan og ófyrirsjáanlegan utanaðkomandi atburð sem veldur tjóni á golfbúnaði á vátryggingartímabilinu.
Golfbúnaðartrygging - Þjófnað á golfbúnaði, hafi hann verið vegna innbrots í læsta íbúð, bifreið, einkabát, einkaloftfar, sumarhús (orlofshús), hjólhýsi og veiðihús eða geymsluskáp í golfskála.
Golfbúnaðartrygging - Þjófnað á golfbúnaði utan golfskála.
Golfbúnaðartrygging - Rán, þ.e. töku golfbúnaðar með líkamlegu ofbeldi eða hótunum um að beita því.
Golfbúnaðartrygging- Skemmdarverk sem unnin eru á golfbúnaði sem valdið er af ásetningi, þó ekki ef vátryggður sjálfur veldur skemmdunum.
Óhappatrygging - Tjón sem tryggður veldur mönnum eða á munum við golfiðkun á golfvelli eða á æfingasvæði við golfvöll.
Hola í höggi trygging - Ef tryggður slær holu í höggi greiðist fjárhæðin sem getið er um á tryggingarskírteininu. Henni er ætlað að endurgreiða kostnað sem hlýst af því að bjóða meðspilurum upp á veitingar að hring loknum.
Hola í höggi trygging - Skilyrði: Spilaðar að minnsta kosti 9 holur með minnst einum meðspilara. Höggið verður að hafa verið það fyrsta sem slegið var af teig í átt að holu.
Hola í höggi trygging - Skilyrði: Völlurinn verður að hafa fengið viðurkenningu frá GSÍ eða sambærilegum erlendum aðila. Skorkort verður að vera rétt útfyllt. Tilkynna skal höggið til klúbbstjórnar eða starfsmanns vallarins.
Árgjaldatrygging - Tjón sem verður ef tryggðum er ófært að stunda golf á golftímabilinu vegna veikinda eða slyss og hefur þegar greitt árgjald í golfklúbb.
Árgjaldatrygging - Skilyrði: Árgjald í einn klúbb. Tímabil ófærni miðast við að minnsta kosti 2 mánuði af golftímabili. Golftímabilið sé að lágmarki 5 mánuðir, maí til og með september og árgjaldinu dreift jafnt á þetta tímabili.
Leiga á búnaði erlendis - Tjón sem verður vegna tafa á afhendingu golfbúnaðar (kylfum og golfpoka) í áætlunar- eða leiguflugi sem varir í allt að 92 samfellda daga frá upphafi ferðar frá Íslandi.
Leiga á búnaði erlendis - Tjón sem verður vegna þess að leigja þarf golfbúnað vegna tafa á afhendingu, fyrir hvern tryggðan 16 ára og eldri, ef innritaður golfbúnaður er ekki afhentur innan 8 klukkustunda eftir að á áfangastað er komið.
Húftrygging bifreiða - Tjón af völdum golfbolta sem sleginn er í bifreið tryggðs af þar til gerðu svæði og markmiðið með högginu er ekki að valda skemmdum.
Teigtrygging erlendis - Tjón sem verður vegna lokunar á golfvelli vegna veðurs. Teiggjöld eru greidd fyrir þá daga sem völlurinn var lokaður vegna veðurs.
Golfbúnaðartrygging - Tjón sem stafar af eðlilegu sliti, galla, rangri samsetningu, ónógu viðhaldi.
Golfbúnaðartrygging - Tjón sem verður ef tryggður gleymir hlut.
Golfbúnaðartrygging - Tjón sem seljandi, viðgerðaraðili eða flutningsaðili ber ábyrgð á samkvæmt samningi eða lögum.
Golfbúnaðartrygging - Tjón á munum sem stolið er úr ólæsri íbúð, faratæki, sumarhúsi (orlofshúsi), hjólhýsi, öðrum geymslustöðum eða eru skildir eftir á almannafæri.
Árgjaldatrygging - Tjón vegna hvers kyns veikinda eða sjúkdóma sem voru til staðar áður en vátryggingin var tekin.
Árgjaldatrygging - Tjón sem verður á 9. mánuði meðgöngu.
Árgjaldatrygging - Slys sem átti sér stað áður en tryggingin var tekin.
Leiga á búnaði erlendis - Tjón sem verður vegna tafa á afhendingu golfbúnaðar þegar að tryggður er á heimleið.
Teigtrygging erlendis - Tjón sem vera vegna lokana golfvalla á Íslandi.
Teigtrygging erlendis - Tjón vegna lokana sem vara hluta úr degi vegna veðurs.