Heimilisvernd 1
Einföld fjölskyldutrygging sem hentar þeim sem eru að hefja búskap og þurfa ekki slysa- og ferðatryggingar.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Einföld fjölskyldutrygging sem hentar þeim sem eru að hefja búskap og þurfa ekki slysa- og ferðatryggingar.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Heimilisvernd | 1 | 2 | 3 | 4 | |
|---|---|---|---|---|---|
Innbústrygging | |||||
Innbúskaskó | Valkvætt | Valkvætt | Valkvætt | ||
Ábyrgðartrygging | |||||
Neyðaraðstoð vegna ofbeldis í nánu sambandi | |||||
Slysatrygging í frítíma | |||||
Sjúkrakostnaður innanlands vegna frítímaslysa | |||||
Umönnunartrygging barna | |||||
Sjúkrahúslegutrygging | |||||
Réttaraðstoðartrygging | |||||
Áfallatrygging | |||||
Ferðarofs- og sjúkrakostnaðartrygging | Valkvætt | Valkvætt | Valkvætt | ||
Farangurtrygging | Valkvætt | Valkvætt | Valkvætt | ||
Farangurstafatrygging | Valkvætt | Valkvætt | Valkvætt | ||
Forfallatrygging | Valkvætt | Valkvætt | Valkvætt | ||
Heimaleigutrygging | Valkvætt | Valkvætt | Valkvætt | ||
Heimilisvernd 1 er einföld og örugg innbús- og ábyrgðartrygging í einum pakka. Hún hentar vel einstaklingum sem eru að byrja að búa, eru barnlausir og þurfa ekki slysa- eða ferðatryggingar. Hún bætir tjón á innbúi heimilis og öðrum persónulegum munum. Heimilisverndin felur einnig í sér ábyrgðartryggingu.
Tryggingin nær til tryggingataka, maka/sambýlismaka og ógiftra barna. Þessir einstaklingar þurfa að eiga sameiginlegt lögheimili á Íslandi, búa á sama stað og hafi sameiginlegt heimilishald.
Innbú eru munir sem fylgja almennu heimilishaldi og telst ekki vera hluti af fasteign eða almennu fylgifé hennar. Hlutir sem þú myndir almennt taka með þér við flutninga teljast til innbús. Við mælum hinsvegar með því að dýrir hlutir, líkt og listmunir, skartgripir, dýr reiðhjól, sérstök tómstundaáhöld og annað sem þarf að skoða sérstaklega og þarf jafnvel að sértryggja.
Það eru engar ferðatryggingar innifaldar í Heimilisvernd 1, en þú getur bætt slíkum tryggingum við í heimilisvernd 2, 3 og 4. Þú gætir einnig verið með ferðatryggingar í gegnum kreditkortið þitt.
Eigandi fasteignarinnar sér um að tryggja fasteignina sjálfa, en þú þarft að sjá um að tryggja þig og innbúið þitt. Það er því skynsamlegt fyrir alla að vera með heimilisvernd, líka þá sem leigja.
Tjón vegna eldsvoða eða sprengingar, svo og skyndilegs sótfalls frá kynditækjum. Skemmdir af völdum vatns, olíu eða annars vökva sem skyndilega og óvænt streymir úr leiðslum hússins þó ekki niðurföllum eða þakrennum.
Tjón vegna yfirborðsvatns, vegna skyndilegs úrhellis eða asahláku.
Tjón vegna innbrots í læst húsnæði eða bifreið. Ólæst húsnæði í ákveðnum tilfellum, sjá nánar skilmála.
Tjón vegna töku muna með líkamlegu ofbeldi eða hótunum (rán).
Skemmdarverk þ.e. skemmdir á tryggðum munum sem valdið er af ásetningi, þó ekki ef valdið af tryggðum sjálfum.
Tjón sem verður vegna ófyrirsjáanlegrar stöðvunar á kælikerfi ísskáps eða frystikistu enda leiði það til skemmda á matvælum.
Tjón sem verður vegna skammhlaups í raftækjum.
Skemmdir á hinu tryggða af völdum óveðurs, skilyrði að vindhraði nái a.m.k. 28,5 m/sek.
Tjón á dýrum.
Tjón á vélknúnum ökutækjum, hjólhýsum og tjaldvögnum.
Tjón á vörum sem ætlaðar eru til sölu.
Tjón vegna vinnu með sprengiefni við verklegar framkvæmdir.
Tjón vegna utanaðkomandi vatns, s.s. grunnvatns, úrkomu, flóða eða vatns frá þakrennum.
Tjón á innbúi vegna búferlaflutninga.
Tjón af völdum skyndilegra og ófyrirsjáanlegra atburða, sem ekki eru bótaskyld skv. hefðbundinni innbústryggingu.
Hlut sem týnist, gleymist eða er skilinn eftir á almannafæri.
Tjón af völdum eðlilegs slits, ófullnægjandi viðhalds eða framleiðslugalla.
Tjón af völdum heimilisdýra.
Skaðabætur hafi vátryggður bakað sér skaðabótaábyrgð og sá sem verður fyrir tjóni ekki meðsekur eða meðábyrgur.
Kostnað sem vátryggður verður fyrir ef skaðabótakrafa er gerð á hendur honum.
Bætir tjón sem barn vátryggðs, yngra en 10 ára veldur, án tillits til skaðabótaskyldu.
Tjón sem vátryggðir valda hverjir öðrum.
Tjón á munum sem vátryggður hefur að láni, til leigu eða geymslu.
Tjón sem verður vegna atvinnu, hvort sem um er að ræða eigin atvinnurekstur eða atvinnu í þjónustu annarra.
Tilfallinn kostnað ef tryggður þarf að breyta aðstæðum sínum vegna ofbeldis í nánu sambandi.