Skartgripatrygging
Skartgripatrygging er víðtæk trygging ætluð einstaklingum sem vilja sértyggja skartgripi sína fyrir óvæntum tjónum.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Skartgripatrygging er víðtæk trygging ætluð einstaklingum sem vilja sértyggja skartgripi sína fyrir óvæntum tjónum.

Skartgripatrygging er sértrygging fyrir verðmæta skartgripi, svo sem hringa, hálsmen, armbönd, eyrnalokka og aðra skráða muni. Tryggingin veitir víðtækari vernd en almennt er í heimilistryggingum.
Tjón á tryggðum munum af völdum skyndilegra og óvæntra óhappa.
Tjón sem orsakast af snöggum hita og rakabreytingum.
Tjón sem stafa af eðlilegu sliti, litabreytingu, hrörnun yfir lengri tíma, ryði, tæringu, rotnun, aflögun, galla, rangri samsetningu, ónógu viðhaldi og innri bilunum.
Tjón sem valdið er af bakteríum, myglu, skordýrum eða meindýrum.
Tjón sem orsakast af hreinsun, viðgerðum, endurslípun, litun, breytingum, endurgerð eða endurbótum.
Tjón sem stafar af innri galla, efnisgalla, smíðagalla, framleiðslugalla eða bilun í hlutnum sjálfum.
Aukakostnað umfram beinan viðgerðarkostnað á skemmdum á skartgripum, svo sem kostnað við hreinsun, yfirferð og ábyrgðareftirlit.