Barnatrygging 2
Barnatrygging án heilsufarsskoðunar sem nær ekki til afleiðinga slysa eða veikinda sem vitað erum um við töku tryggingarinnar.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Barnatrygging án heilsufarsskoðunar sem nær ekki til afleiðinga slysa eða veikinda sem vitað erum um við töku tryggingarinnar.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur meira skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Meðgöngu- og foreldravernd er viðbótarvernd í sjúkdómatryggingu Varðar sem styður við verðandi mæður og foreldra með fjárhagslegri vernd og andlegum stuðningi ef alvarleg atvik koma upp á meðgöngu eða í fæðingu.

Viðskiptavinir njóta afslátta og fríðinda á ýmsum vörum og þjónustu hjá samstarfsaðilum Varðar. Þú finnur afslættina á Mínum síðum.
Barnatrygging er fyrst og fremst örorkutrygging fyrir börnin en einnig greiðast úr henni bætur til foreldra, sem getur skipt máli fjárhagslega þurfi þeir t.d að vera frá vinnu í lengri eða skemmri tíma vegna veikinda barnsins.
Öll börn ættu að vera með barnatryggingu. Hægt er að tryggja börn frá eins mánaða aldri til 18 ára aldurs og gildir tryggingin til 26 ára aldurs.
Tryggingin gildir á Norðurlöndunum. Þó gildir tryggingin í allt að eitt ár ef vátryggður flytur frá Norðurlöndunum.
Grunnvátryggingarfjárhæðin er 8.000.000 kr.
Í flestum tilvikum ná tryggingar sveitarfélaga aðeins til sjúkraflutninga og fyrstu aðgerða á slysadeild. Þær ná ekki yfir varanlegar afleiðingar slysa, örorku af völdum slysa eða sjúkdóma og alls ekki til yngstu barna sem enn eru heima.
Ársiðgjald fyrir barnatryggingu 2 er 13.200 kr. eða 1.100 kr. á mánuði.
Örorkubætur vegna varanlegrar læknisfræðilegrar örorku af völdum sjúkdóms eða slyss.
Bætur til forráðamanns vegna örorku barns.
Bætur vegna aðhlynningar ef hinn vátryggði er innlagður á sjúkrahús og/eða þarfnast sólarhrings aðhlynningu heima fyrir.
Sjúkdóma sem sýna einkenni innan þriggja mánaða frá því að vátryggingin tók gildi.
Tryggingin nær ekki til sjúkdóma, slysa, líkamságalla eða andlegs seinþroska/þroskaröskunar né heldur til afleiðinga slíks ástands hafi einkenni þessi sýnt sig áður en vátryggingin tók gildi.
Slys eða sjúkdóma sem beint eða óbeint eru af völdum heimsfaraldra sem eru útbreiddir á heimsvísu.
Dreyrasýki.
Þroskafrávik (t.d. ADHDathyglisbrestur/ofvirkni, einhverfa, seinþroski, Asperger heilkenni, Tourette sjúkdómur).
Flogaveiki.
Sjúkdóma í miðtauga- og vöðvakerfi (t.d. CP (heilalömun), vöðvarýrnun).
Leiðni- og skyntaugaheyrnatap.
Meðfædda fötlun eða litningafrávik (t.d. Downs heilkenni og vansköpuð innvortis líffæri).
Geðræna sjúkdóma.
Slys er verða í hvers konar akstursíþróttum, bardagaíþróttum, fjallaklifri, klettaklifri, bjargsigi, froskköfun, drekaflugi, svifflugi og fallhlífarstökki og/eða íþróttum sem eru sambærilegar og eðlisskyldar.
Sjálfsvíg eða sjálfsvígstilraun sem rakin verður til geðrænna sjúkdóma.
Vátryggingin greiðir sálfræðiþjónustu verði vátryggður fyrir áfalli vegna andláts foreldris eða forráðamanns, líkamsárásar eða ofbeldi þ.m.t. kynferðisofbeldi, greiningar á einhverjum þeim sjúkdómi sem trygging þessi bætir eða eineltis.
Vátryggingin bætir ekki meðferð ef barnið framkvæmdi eða tók þátt í atburði sem telst refsiverður skv. íslenskum lögum.
Vátryggingin bætir ekki tjón sem rekja má til sjúkdóma, slysa eða áfalla sem áttu sér stað eftir að vátryggingin féll úr gildi eða fyrir gildistöku hennar.
Sálfræðiþjónustu vegna áfalla sem áttu sér stað fyrir 01.01.21
Dánarbætur vegna andláts barns.
Sjálfsvíg eða sjálfsvígstilraun sem rakin verður til geðrænna sjúkdóma.
Félagið greiðir iðgjald tryggingarinnar ef vátryggingartaki yngri en 65 ára fellur frá á gildístíma hennar.
Tryggingin þarf að hafa verið í gildi í 24 mánuði þegar andlátið ber að höndum.
MS (heila- og mænusigg) (Multiple Sclerosis).
Krabbamein (Cancer).
Góðkynja heilaæxli (Benign Brain Tumour).
Sykursýki (Diabetes Mellitus 1).
Alvarleg brunasár (Third Degree Burns).
Slímseigjusjúkdóm (Cystic Fibrosis).
Liðagigt (barna liðagigt/langvinn liðagigt) (Juvenile Rheumatoid Arthritis).
Blindu (Blindness).
Alnæmi (AIDS) vegna stunguóhapps eða af völdum blóðgjafar
Hvers konar húðkrabbamein.
Öll æxli sem er vefjafræðilega lýst sem forstigseinkennum eða sem einungis sýna snemmbærar illkynja breytingar.
Setbundið krabbamein, ekki ífarandi.
Blöðrur (cysts) í heila.
Hnúða (granulomas) í heila.
Heilahimnuæxli (meningiomas).
Seilaræxli (choromas).
Æðagalla.