Líf- og sjúkdómatrygging fyrir ungt fólk
Trygging fyrir ungt fólk á aldrinum 18-39 ára með litlar fjárhagslegar skuldbindingar komi til alvarlegra veikinda eða andláts.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Trygging fyrir ungt fólk á aldrinum 18-39 ára með litlar fjárhagslegar skuldbindingar komi til alvarlegra veikinda eða andláts.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur meira skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Meðgöngu- og foreldravernd er viðbótarvernd í sjúkdómatryggingu Varðar sem styður við verðandi mæður og foreldra með fjárhagslegri vernd og andlegum stuðningi ef alvarleg atvik koma upp á meðgöngu eða í fæðingu.

Þú getur gengið frá líf- og sjúkdómatryggingu, sem er sérsniðin að þínum skuldbindingum, á örfáum mínútum. Eftir hverju ert þú að bíða?
Fyrst þú ert að kynna þér líf- og heilsutryggingar þá gætir þú jafnframt haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.
Líf- og sjúkdómatrygging er samsett trygging sem skiptist í líftryggingu og sjúkdómatryggingu. Tryggingin er fjárhagsleg vernd fyrir þá sem hafa slíka tryggingu og aðstandendur þeirra.
Tryggingin er samansett af Líftryggingu og Sjúkdómatryggingu. Líftrygging greiðir bætur til aðstandenda þinna, eða þeirra sem þú velur, ef þú fellur frá af völdum sjúkdóms eða slyss. Sjúkdómatrygging greiðir þér bætur ef þú greinist með tiltekinn sjúkdóm. Sjúkdómar sem falla undir sjúkdómatrygginguna eru taldir upp á upplýsingaskjali og í skilmálum tryggingarinnar.
Líf- og sjúkdómatrygging er flestum nauðsynleg óháð fjölskylduaðstæðum vegna þess að alvarleg veikindi eða slys gera ekki boð á undan sér.
Þú ákveður hverjir fá bæturnar úr líftryggingunni þinni. Ef þú nefnir engan sérstakan rennur bótafjárhæðin til maka þíns ef hann er til staðar. Ef þú lætur ekki eftir þig maka rennur bótafjárhæðin til erfingja samkvæmt lögum eða erfðaskrá. Þú getur einnig skráð einstaklinga sem þú vilt að öðlist rétt til greiðslu bóta eins og til dæmis sambúðarmaka.
Valmöguleikarnir eru þá eftirfarandi:
Lögerfingjar: Giftur maki þinn fær 1/3 af fjárhæðinni og börnin þín 2/3 af fjárhæðinni.
Ekki tilnefndur rétthafi: Giftur maki þinn fær alla fjárhæðina greidda til sín. Sértu ekki giftur, rennur öll fjárhæðin til barna þinna. Sé ekki maki eða börn til staðar, þá er fjárhæðin greidd til foreldra þinna.
Skráning á nafn: Þú velur hver fær bæturnar. Ef þú átt maka en þið eruð ekki gift, þá þarf að nota þessa skráningu ef maki á að fá fjárhæðina greidda til sín.
Þeir sjúkdómar sem tryggingin tekur til eru flokkaðir í fimm bótaflokka;
Heilaáfall, lömun og málstol
Krabbamein
Tauga- og hrörnunarsjúkdóma
Hjarta og æðasjúkdómar
Aðra alvarlega sjúkdóma
Nánari útlistun má nálgast á upplýsingaskjali tryggingarinnar eða í skilmálum.
Bætur líftryggingar greiðast í einu lagi til rétthafa og eru undanþegnar tekjuskatti. Sjúkdómatryggingar eru greiddar út í formi eingreiðslu og aðeins er greitt einu sinni úr hverjum bótaflokki fyrir sig.
Líf- og sjúkdómatryggingin gildir hvar sem er í heiminum.
Einstaklingar á aldrinum 18-37 ára geta sótt um líf- og sjúkdómatryggingu fyrir ungt fólk og er gildistími hennar til 39 ára aldurs.
Meðgöngu- og fæðingartengd atvik
Ef tryggður greinist með eitt af eftirfarandi á meðgöngu eða við fæðingu eru greiddar eingreiðslubætur 1.000.000 kr.:
Meðgöngueitrun
Utanlegsfóstur sem krefst aðgerðar
Missir á meðgöngu eftir 14+0 viku og þungunarrofs vegna staðfestrar greiningar á alvarlegu fósturfráviki
Alvarleg morgunógleði
Alvarleg blæðing eftir fæðingu ≥1.500 ml
Alvarleg spangarrifa (3. og 4. stigs)
Innvaxin fylgja
Fylgjulos
DIC (dreifð blóðstorknun)
Meðfætt heilsufarsástand barns
Ef barn tryggðs greinist með eitt af eftirfarandi við fæðingu eða á fyrsta ári ævi sinnar eru greiddar eingreiðslubætur 1.000.000 kr.
CP-heilalömun
Vatnshöfuð
Klofinn hryggur
Meðfæddir hjartagallar sem krefst skurðaðgerðar innan fyrstu 6 mánaða lífs barns
Holgómi og klofin vör sem krefst skurðaðgerðar eða sértækrar meðferðar
Alvarleg meðfædd byggingarfrávik í kviðvegg eða þind
Litningafrávik sem krefst langvarandi umönnunar
Klumbufótur eða alvarlegt útlimafrávik
Sjaldgæfir og lífshættulegir sjúkdómar sem uppfyllir 2 af 3 skilyrðum
Stuðningssamtöl vegna áfalla á barneignatímabil
Tryggingin veitir að hámarki fimm tíma stuðningssamtöl vegna eftirfarandi:
Bótaskylt atvik úr meðgöngu- og foreldravernd
Meðgöngu- og fæðingarþunglyndi
Missir á meðgöngu fyrir 14+0 viku
Erfið eða áfallatengd fæðingareynsla
Bráðakeisaraskurður
Ofbeldi í nánu sambandi
Afleiðingar leka á mænuvökva við mænudeyfingu (t.d. spinal höfuðverkur).
Mjög ótímabær fæðing, þ.e. barn fæðist fyrir 32. viku meðgöngutíma og hafi þurft innlögn á spítala eftir fæðingu vegna ótímabærs þroska.
Við missi á meðgöngu getur tryggður einnig óskað eftir stuðningssamtölum fyrir börn tryggðs að teknu tilliti til aldurs og aðstæðna.
Meðgöngu- og fæðingartengd atvik
Sjúkdóma eða kvilla sem voru til staðar áður en tryggingin tók gildi, þar á meðal greiningar eða einkenni sem má rekja til ástands sem hófst fyrir meðgöngu.
Þungunarrof af öðrum orsökum en læknisfræðilegum.
Önnur tilvik eða sjúkdómar sem ekki eru tilgreindir í skilmálum tryggingarinnar.
Sjúkdóma, líkamságalla eða annarra kvilla sem að einhverju leyti má rekja til neyslu áfengis, lyfja eða vímuefna.
Sjúkdóma sem eiga rót sína að rekja til fegrunar- eða lýtaaðgerða á meðgöngu.
Meðfætt heilsufarsástand barns
Heilsufarsástand barns sem var til staðar áður en tryggingin tók gildi, þar á meðal greiningar eða einkenni.
Tryggingarfjárhæðin er aðeins greidd fyrir eina af greiningunum sem taldar eru upp hér að neðan, jafnvel þó barnið sé með fleiri greiningar og jafnvel þó fleiri en eitt skírteini eru í gildi hjá tryggðum.
Skilyrði fyrir bótgreiðslum er að barnið lifi í 30 daga frá því að það greinist með sjúkdóm, aðgerð var framkvæmd eða annar tryggingaratburður átti sér stað.
Stuðningssamtöl vegna áfalla á barneignatímabili
Áfalla eða sjúkdóma sem hófust áður en tryggingin tók gildi eða verndin hófst.
Annarra atvika eða sjúkdóma en þeirra sem sérstaklega eru tilgreindir sem bótaskyld í þessum skilmálum.
Aukakostnaður, svo sem ferðakostnaður eða sambærilegir útgjaldaliðir, er ekki greiddur úr tryggingunni.
Dánarbætur til rétthafa sem viðskiptavinur velur í upphafi.
Dánarbætur barna ef lifandi fætt barn vátryggðs andast á vátryggingartímanum. Að hámarki 750.000 kr. eru greiddar til vátryggðs.
Sjúkdóm á lokastigi ef sjúkdómur er greindur fyrir 39 ára aldur og læknar hafa staðfest lífslíkur 6 mánuði eða minna.
Sjálfsvíg innan árs frá gildistöku tryggingarinnar.
Bráð kransæðastífla/hjartadrep (Myocardial Infarction) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Kransæðaskurðaðgerð/hjáveituaðgerð (Coronary Artery Bypass Surgery) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Hjartalokuskurðaðgerð – lokuskipti eða viðgerð (Heart Valve Surgery) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Ósæðarskurðaðgerð (Aorta Graft Surgery) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Varðandi Bráð kransæðastífla/hjartadrep (Myocardial Infarction), er undanskilið hjartadrep án ST-hækkana (NSTEMI), með hækkun á Tróponíi I eða T ásamt öðrum bráðum kransæðatilfellum (acute coronary syndrome).
Varðandi Kransæðaskurðaðgerð/hjáveituaðgerð (Coronary Artery Bypass Surgery), er undanskilið aðrar aðgerðir sem ekki eru opnar, t.d. kransæðavíkkanir (PCI) og laseraðgerðir.
Varðandi Ósæðarskurðaðgerð (Aorta Graft Surgery) er undanskilið aðgerðir sem framkvæmdar eru á greinum ósæðar utan brjóst- eða kviðarhols.
Heilablóðfall/slag (Stroke).
Þverlömun (Paraplegia).
Málstol (Aphasia).
Varðandi Heilaáfall/slag (Stroke) er undanskilið skammvinnt blóðþurrðarkast í heila (TIA) og einkenni frá taugakerfi vegna mígrenis.
Varðandi Málstol (Aphasia) er undanskilið málstol sem á rætur að rekja til sálrænna kvilla.
Illkynja æxli sem einkennist af stjórnlausum vexti og dreifingu illkynja fruma ásamt ífarandi vexti í vefi.
Forstigseinkenni krabbameins.
Æxli sem eru staðbundin og ekki ífarandi (in situ).
Öll stig CIN (innanþekjuæxlisvaxtar í leghálsi).
Hodgkins-sjúkdómur á stigi 1.
Langvinnt eitilfrumuhvítblæði.
Æxli í blöðruhálskirtli á stigi T1 og Gleason-stigi 6 eða lægra.
Allar tegundir æxla þegar alnæmi er til staðar (HIV).
Kaposi‘s sarcoma.
Öll húðkrabbamein, önnur en illkynja, ífarandi sortuæxli.
Krabbamein sem greinist á fyrstu þremur mánuðum eftir gildistöku vátryggingarinnar.
MS (Multiple Sclerosis) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
MND fyrir 60 ára aldur (Alzheimer‘s Disease) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Parkinsonveiki fyrir 60 ára aldur (Parkisons´s Disease) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Varðandi Parkinsonsveiki (Parkinson’s Disease), undanskilið er Parkinsonsveiki sem er afleiðing misnotkunar áfengis eða vímuefna.
Góðkynja heilaæxli (Benign Brain Tumour).
Meiriháttar líffæraflutningur (Major Organ Transplantation).
Nýrnabilun (Kidney Failure) lokastig nýrnasjúkdóms.
Alvarleg brunasár (Third Degree Burns) þriðja stigs, sem þekja a.m.k. 20% af yfirborði líkamans.
Útlimamissir (Loss of Limbs) tveggja eða fleiri útlima.
Blinda (Blindness), varanleg og ólæknanleg sjónskerðing.
Eyðnismit við blóðgjöf, líkamsárás eða framkvæmd tiltekinna starfa (HIV Infection in blood transfusions, physical assaults, or in the performance of certain tasks).
Heyrnarleysi (Deafness) óafturkallanlegt samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Heilahimnubólga af völdum bakteríusýkingar (Bacterial Meningitis) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum. Alvarlegur höfuðáverki (Serious Head Wounds) samkvæmt nánari skilgreiningu í skilmálum.
Varðandi Góðkynja heilaæxli (Benign Brain Tumour), undanskilið eru blöðrur (cysts), hnúðar (granulomas), heilahimnuæxli (meningiomas), seilaræxli (chordomas), æðagallar í eða á slagæðum eða bláæðum og heilamar og æxli í heiladingli eða mænu.
Varðandi Eyðnismit (HIV), undanskilið er HIV-smit sem stafar af öðrum orsökum, þ.á.m. af kynferðislegum athöfnum eða eiturlyfjaneyslu.