Slysatrygging 2
Slysatrygging með dánarbótum- og örorkubótum vegna slysa. Ekki þarf að fylla út yfirlýsingu vegna heilsufars og hentar tryggingin því þeim sem vilja einfaldari slysatryggingu.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Slysatrygging með dánarbótum- og örorkubótum vegna slysa. Ekki þarf að fylla út yfirlýsingu vegna heilsufars og hentar tryggingin því þeim sem vilja einfaldari slysatryggingu.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur meira skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Varanlega læknisfræðilega örorku af völdum slyss sem nær 70%.
Dánarbætur vegna slyss.
Slys sem vátryggður verður fyrir í handalögmáli, við þátttöku í refsiverðum verknaði, undir áhrifum deyfi- og/eða fíkniefna eða í ölæði, nema sannað sé að ekkert samband hafi verið milli ástands þessa og slyssins.
Slys sem verða við fjallaklifur, bjargsig, hnefaleika, glímu- og bardagaíþróttir, akstursíþróttir, fallhlífarstökk og froskköfun.
Slys sem verða vegna meðvitaðrar háttsemi, ásetnings eða stórkostlegs gáleysis vátryggðs.
Sjálfsvíg eða sjálfsvígtilraun sem rakin verður til geðrænna sjúkdóma.
Fyrst þú ert að kynna þér líf- og heilsutryggingar þá gætir þú jafnframt haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.

Styður við fjölskyldur komi til andláts og eykur þannig lífsgæði og fjárhagslegt öryggi þeirra sem eftir standa.

Tryggir fjárhagslegt öryggi einstaklinga og fjölskyldna komi til alvarlegra veikinda.

Heimilisvernd er samsett trygging fyrir fjölskylduna og innbúið. Hægt er að velja um fjórar mismunandi tryggingar allt eftir þínum þörfum.