Húftrygging eftirvagna
Bætir tjón á ferðavagni, hvort sem hann er í umferðinni eða í geymslu.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Bætir tjón á ferðavagni, hvort sem hann er í umferðinni eða í geymslu.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.
Tjón vegna eldsvoða, eldinga, eða sprenginga sem stafa af eldsvoða.
Tjón vegna árekstra, veltu, útafaksturs.
Tjón vegna grjóthruns, snjóflóða úr fjallshlíð og skriðufalla.
Tjón vegna stuldar og skemmda sem verða við innbrot eða tilraun til innbrots.
Tjón vegna skemmdarverka.
Tjón af völdum óveðurs, skilyrði að vindhraði nái a.m.k. 30 m/sek.
Tjón á eftirvagni við flutning með öðru flutningstæki á landi.
Brot á rúðum.
Kostnað við flutning eftirvagns til næsta viðurkennda viðgerðaverkstæðis.
Tjón sem valdið var af ásetningi eða stórkostlegu gáleysi eiganda eftirvagns.
Skemmdir sem verða við akstur utan þjóðvegakerfis, yfir snjóskafla, ís, óbrúaðar ár eða læki og utanvegar.
Skemmdir sem verða af efnisgalla, hönnunargalla, smíðisgalla eða viðgerðargalla.
Skemmdir af sliti eða ófullnægjandi viðhaldi.
Skemmdir af völdum þess að sandur, möl, aska, vikur eða önnur jarðefni fjúka á eftirvagn.
Skemmdir er aðeins varða hjól, hjólbarða, fjaðrir, rafgeymi, gaskúta, gler (annað en rúður) og hljómtækjum.
Skemmdir á rafbúnaði vegna skammhlaups.

Það skiptir máli að bregðast rétt við þegar óhöpp gerast og því gott að hafa eftirfarandi í huga.

Hér má finna lista yfir helstu verkstæði og aðra þjónustuaðila okkar vegna bílatjóna.

Viðskiptavinir okkar í Grunni njóta ókeypis vegaaðstoðar allan sólarhringinn víða um land í samstarfi við Krók.
Margir kannast við að hafa fengið stein í framrúðuna á bílnum sínum. Ef viðgerð á rúðunni er möguleg greiðir Vörður viðgerðina að fullu og þú sparar þér eigin áhættu.
