Neyðaraðstoð vegna ofbeldis í nánu sambandi
Heimilið á að vera öruggur staður.
Einstaklingar sem búa við ofbeldi í nánum samböndum geta sótt fjárhagslegar bætur í heimilistryggingu Varðar til þess að taka skref í átt að breyttum aðstæðum.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Heimilið á að vera öruggur staður.
Einstaklingar sem búa við ofbeldi í nánum samböndum geta sótt fjárhagslegar bætur í heimilistryggingu Varðar til þess að taka skref í átt að breyttum aðstæðum.


Hér að neðan er rafrænt eyðublað fyrir neyðaraðstoð vegna ofbeldis í nánu sambandi. Í því munum við biðja þig um að gefa okkur örfáar upplýsingar, t.a.m. frá hvaða fagaðila þú hefur fengið aðstoð upp á staðfestingu og hvaða greiðsluleið hentar þér. Verndin nær til atvika sem hafa átt sér stað á síðastliðnum 12 mánuðum.
Það mun hvergi birtast á tryggingayfirliti eða á Mínum síðum að þú hafir fyllt út þetta eyðublað.
Þegar þú hefur fyllt út eyðublaðið munum við hafa samband við tilgreindan fagaðila og hefja svo greiðsluferlið. Við reynum eftir fremsta megni að afgreiða beiðni þína eins fljótt og við getum.
Fyrir frekari upplýsingar getur þú haft samband við okkur í gegnum vernd@vordur.is.
Click here to file a claim in English for emergency assistance due to domestic violence.
Ofbeldi í nánum samböndum er ofbeldi sem einstaklingur verður fyrir af hálfu einhvers sem er honum nákominn, skyldur eða tengdur, eins og maki, barn, foreldri, barnsfaðir, systkini eða forráðamaður. Ofbeldi getur átt sér stað óháð kyni, aldri, kynhneigð eða hverju öðru.
Stafrænt ofbeldi er hvers konar áreitni, hótanir, niðurlæging eða stjórnun sem á sér stað í gegnum stafræna miðla, eins og síma, tölvu eða samfélagsmiðla. Það er líka ef einhver er að fylgjast með hvað þú gerir í símanum þínum og hvað þú gerir á netinu.

Líkamlegt ofbeldi er þegar einstaklingur verður fyrir líkamlegum skaða eða sársauka af völdum annars, t.d. með höggum, spörkum eða hrindingum. Líkamlegt ofbeldi er líka þegar haldið er aftur af grunnþörfum viðkomandi.
Fjárhagslegt ofbeldi er þegar fjármál eru notuð til að stjórna manneskju. Það getur verið með því að setja takmarkanir á hvað þú mátt kaupa, skerða aðgang að eigin peningum eða svíkja af þér peninga.
Andlegt ofbeldi er þegar einhver hótar þér, gerir lítið úr þér eða lætur þér líða illa. Það getur verið í formi orðaskipta eða líkamstjáningar. Þar sem andlegt ofbeldi skilur ekki eftir sig sjáanlega áverka er oft erfitt að greina það.
