
Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.

Við afgreiðslu ákveðinna tjóna getur Vörður beitt sjálfvirkri vinnslu sem leiðir til sjálfvirkarar ákvörðunartöku. Slík vinnsla byggir á þeim upplýsingum sem viðskiptavinir hafa lagt fram, gögnum sem aflað er úr innri kerfum félagsins og þegar við á gögnum frá utanaðkomandi aðilum samkvæmt upplýstu samþykki eða lagaheimild.
Með sjálfvirkri ákvörðunartöku getur tjónið verið metið og afgreitt án þess að starfsmaður fari yfir málið. Þetta gerir okkur kleift að afgreiða einföld tjón hraðar og veita viðskiptavinum sem besta þjónustu. Ef þú kýst að hafna því að tjón þitt sé afgreitt með sjálfvirkri ákvörðunartöku fer það í handvirka vinnslu hjá starfsmanni. Slíkt getur leitt til lengri afgreiðslutíma. Þá getur þú fengið starfsmann til að yfirfara og endurmeta niðurstöður sjálfvirkrar ákvörðunar. Óskir þú eftir endurmati á niðurstöðum, eða óskir þú eftir því að tjón þitt fari ekki í gegnum sjálfvirka ákvarðanatöku, hafðu samband við okkur í síma 514-1000 eða með því að senda tölvupóst á vordur@vordur.is.
Nánari upplýsingar um meðferð persónuupplýsinga hjá Verði má finna hér.
