Tjón
Tjón
Ferðalög - mynd af farangri

Lækn­is­að­stoð er­lend­is - Hvert á að leita?

Ef alvarlegt slys eða veikindi koma upp erlendis getur staðan orðið flókin og kostnaðarsöm. Með því að hafa samband við SOS International færðu faglega aðstoð strax og tryggt er að mál séu rétt unnin í samræmi við tryggingavernd þína. Margir Íslendingar hafa aðgang að þjónustunni í gegnum ferðatryggingar eða kreditkort.

Hvað er SOS International?

SOS International er alþjóðlegt neyðarþjónustufyrirtæki sem veitir aðstoð við slys, veikindi og önnur alvarleg atvik, einkum þegar fólk er statt erlendis. Fyrirtækið hefur starfað frá árinu 1961 og vinnur náið með tryggingafélögum, bönkum og kreditkortafyrirtækjum. Þjónustan er í boði allan sólarhringinn, alla daga ársins. SOS International aðstoðar meðal annars við:

  • samskipti við sjúkrahús og heilbrigðisstarfsfólk

  • staðfestingu á ferðatryggingum

  • ráðgjöf, sjúkraflutninga og heimflutning ef þörf krefur

Einnig býður SOS International upp á Find Care þjónustu, þar sem hægt er að finna næstu heilsugæslu eða sjúkrahús sem viðurkennd er af SOS, miðað við staðsetningu þína.

Neyðarsími Varðar er opinn allan sólarhringinn alla daga ársins, +354 514 1099

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
istockphoto-2157944183-1024x1024

Ertu eld­klár í sumar­bú­staðnum?

Sumarhús eru griðastaður til þess að slaka á í frístundum og þó margir nýti bústaðinn allt árið um kring er sumarið sá tími sem flestir dvelja þar lengst.

Lesa meira
Verktaki á byggingarsvæði

Forvarnir eru forsenda árangurs

Í sífellt flóknara rekstrarumhverfi nútímans er ekki lengur nægjanlegt fyrir fyrirtæki að bregðast við vandamálum eftir að þau hafa komið upp. Árangursrík fyrirtæki byggja á forvörnum og sterkri öryggismenningu sem dregur úr eða útilokar áhættu, áður en hún verður að tjóni. Slík nálgun er ekki aðeins siðferðilega rétt heldur einnig fjárhagslega skynsamleg.

Lesa meira
Innbú

Læknisþjónusta á ferðalögum

Vörður varar við læknastofunni Clinic Diamond á Kanarí vegna svikamála sem komið hafa upp í tengslum við stofuna. Starfsfólk á vegum stofunnar hefur bæði of meðhöndlað fólk og rukkað það svo himinháar upphæðir í kjölfarið.

Lesa meira
Fá tilboðTilkynna tjón