Tjón
Tjón

12.02.2026

Mikið frost í kort­unum

„Orsök tjóns á sumarhúsinu má rekja til leka á heitu vatni sem rann yfir talsverðan tíma án þess að nokkur yrði þess var. Vatn náði að frjósa í lögnum að öllum líkindum vegna bilunar á hringrásardælu fyrir ofnakerfi hússins og síðan hefur byrjað að leka úr rifnum lögnum í næstu þýðu. Slökkvilið var kallað út til að aðstoða við að dæla upp vatni og að þeirra sögn var meira en 10cm vatn yfir öllu gólfi hússins þegar þeir komu á staðinn og mikil gufa í flestum rýmum.“

Svona hljóðar lýsing á vatnstjóni í sumarbústað fyrir stuttu og var bústaðurinn ónýtur. Þetta er ekki einsdæmi því á hverju ári verða miklar skemmdir á sumarhúsum vegna frostsprunga í lögnum.

Það er mikið frost í kortunum næstu daga og því mikilvægt að gera ráðstafanir. Vatnstjón í sumarhúsum eru algeng og við það veðurfar sem við búum við hér á landi geta auðveldlega skapast aðstæður sem valda þeim. En það er hægt að koma í veg fyrir þau eða a.m.k takmarka með einföldum forvörnum:

Ef hiti er tekin af sumarhúsinu yfir vetur:

  • Lokaðu aðalvatnsloka.

  • Opnaðu alla krana úti og inni og tæmdu vatn af kerfi.

  • Tæmdu salerni og vatnstanka.

  • Helltu frostlegi í vatnslása (vaskar, salerni, sturta) og niðurföll.

Ef hiti er á sumarhúsinu yfir vetur:

  • Haltu hitanum á a.m.k. 10°C í öllum rýmum með lagnir.

  • Gakktu úr skugga um að varmaskynjarar, ofnar og hitakerfi virki rétt.

  • Einangraðu vel lagnir sem liggja í köldum rýmum

  • Ef þú ert með snjallkerfi getur þú fylgst með hitastigi í appinu

Einnig er mikilvæg að sumarhúsaeigendur kynni sér allar þær leiðir sem færar eru til þess að reyna að koma í veg fyrir alvarleg tjón:

Wi-Fi vatnsskynjarar

Ýmsir möguleikar eru í boði þegar kemur að því að setja upp öryggiskerfi í sumarhúsinu. Flest kerfi eru nettengd og hægt er að fá aðvörun í síma gegnum app ef eitthvað er í ólagi. Hægt er að fá svokallaða 4g hnetu ef ekki er Wi-Fi í bústaðnum og tengja kerfið gegnum hana. Vatnskynjararnir eru tiltölulega ódýrir og kjörið að hafa í eldhúsi, baðherbergi og stofu. Ef þú ert í vafa um hvernig á að setja upp öryggiskerfi í sumarhúsi þá geta sölumenn öryggisverslanna aðstoðað þig með uppsetningu þeirra.

Öryggisloki fyrir vatn

Hægt er að fá öryggisloka á vatnslagnir sem loka fyrir innstreymi á vatn til salernis, vasks eða heimilistækja eins og uppþvottavéla eða þvottavéla. Lokinn er millistykki milli tækis og krana sem virkjast ef of mikið vatn fer gegnum hann á ákveðnum tíma. Til eru einfaldir, öruggir og tiltölulega ódýrir lokar sem þurfa ekki rafmagn. Hægt er að stilla mismunandi öryggismörk á lokanum eftir því hversu mikið vatn er verið að nota.

Næ ég í tæka tíð?

Hvað ef það byrjar að leka í bústaðnum og ég er ekki þar? Því fyrr sem þú kemst til þess að skrúfa fyrir, því minni verður skaðinn. En það eru líka hægt að nota tengslanetið á sumarbústaðasvæðinu og biðja aðra að gæta að húsinu fyrir þig. Mögulega er einhver nágranni í bústað nálægt og getur brugðist við eða íbúi í nágrenninu sem hægt er að semja við um eftirlit. Hafa bera í huga að oft byrjar að leka þegar frostakaflinn er yfirstaðinn og klakinn sem sprengdi lagnirnar byrjar að þiðna.

Flestir tengja ferð í sumarbústaðinn við slökun og kyrrð. Það vill engin lenda í því að koma að húsinu sínu á floti og því mikilvægt að fyrirbyggja slík tjón. Ekki bíða með að grípa til aðgerða, gangið vel frá sumarhúsinu fyrir brottför og skoðið hvaða möguleikar eru í boði með vöktun og snjallkerfi. Ef ráðast þarf í viðamiklar breytingar lögnum í sumarhúsi mælum við alltaf með að samráð sé haft við fagmenn.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
16. júní 2026

Vörður og Arion banki semja við Knatt­spyrnu­deild Kefla­vík­ur

Vörður og Arion banki hafa undirritað samstarfssamning við knattspyrnudeild Keflavíkur. Með samningnum vill Arion styðja við öflugt íþróttastarf á Suðurnesjum, en Arion banki og Vörður opnuðu nýlega nýtt útibú á Aðaltorgi í Reykjanesbæ þann 5. maí síðastliðinn.

Lesa meira
15. júní 2026

Vörður og GSÍ kynna nýja útgáfu af Regluverði

Regluvörður 2026, ný og endurbætt útgáfa af golfleik Varðar og Golfsambands Íslands, hefur litið dagsins ljós. Þar geta kylfingar bætt þekkingu sína á golfreglum á skemmtilegan hátt en þúsundir hafa spilað fyrri útgáfur.

Lesa meira
20. maí 2026

Ný tryggingavernd fyrir fólk sem glímir við ófrjósemi

Vörður hefur bætt frjósemisvernd við hefðbundnar sjúkdómatryggingar sínar viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Er það í fyrsta sinn á Íslandi sem tryggingavernd tekur á þessum vanda, sem er algengari en margir gera sér grein fyrir.

Lesa meira
Fá tilboðTilkynna tjón