Tjón
Tjón

26.01.2026

Helga Huld til Varðar frá Icelanda­ir

Helga Huld Bjarnadóttir er nýr þjónustustjóri þjónustustýringar hjá Verði tryggingum og hefur hún nú þegar hafið störf. Helga Huld kemur inn í stjórnendateymi Varðar á sviði þjónustu frá Icelandair þar sem hún starfaði frá árinu 2001 í fjölbreyttum störfum á sviði sölu og þjónustu. Nú síðast gegndi hún stöðu forstöðumanns þjónustuupplifunar og -Vildarklúbbs Icelandair. Í því starfi stýrði hún teymi sérfræðinga sem störfuðu með öllum deildum fyrirtækisins við að tryggja samræmda stefnu á sviði þjónustu og þjónustuþróunar.

Helga Huld lauk námi í BSc viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík með áherslu á vörustjórnun og BSc í rekstrarverkfræði frá sama skóla. Auk þess er hún með mastersgráðu í rekstrarverkfræði frá Tækniháskóla Danmerkur.

Í nýju starfi hjá Verði mun Helga Huld stýra þjónustuþróun og upplifun viðskiptavina, leiða og þróa samræmda þjónustu í öllum þjónustueiningum Varðar.

,,Við erum afar ánægð að fá Helgu Huld til liðs við teymið okkar hjá Verði. Hún býr yfir mikilli þekkingu og áralangri reynslu á sviði þjónustu og upplifun viðskiptavina. En það er eitt af okkar megin markmiðum hjá Verði að viðskiptavinir okkar upplifi að þeir séu ávallt númer eitt og að við einfaldlega förum fram úr þeirra væntingum í þjónustu,“ segir Hrefna Kristín Jónsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu hjá Verði tryggingum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Er mynstrið þitt nægi­lega djúpt?

Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum.

Lesa meira
2. nóvember 2026

Vörður og Arion styrkja Reykjalund um þrjár milljónir

Við hjá Verði og Arion banka erum stolt af því að starfa með fjölmörgum framúrskarandi fyrirtækjum um land allt. Í tilefni af viðurkenningu þeirra höfum við á undanförnum árum stutt við mikilvæg samfélagsverkefni í þeirra nafni.

Lesa meira
23. október 2026

Vörður aðalbakhjarl Körfuknattleiksdeildar Hattar

Vörður tryggingar og Körfuknattleiksdeild Hattar hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning. Samkvæmt samningnum verður Vörður aðalbakhjarl deildarinnar og mun heimavöllur Hattar jafnframt bera nafnið Varðarhöllin.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð