Tjón
Tjón

17.10.2025

Nú er­uð þið tryggð á með­göng­unni

Vörður hefur bætt meðgöngu-, fæðinga- og foreldravernd við hefðbundnar sjúkdómatryggingar. Nýja verndin hefur það að markmiði að vera stuðningur við verðandi foreldra á þessu mikilvæga tímabili.

Hingað til hefur tryggingavernd á meðgöngu og í fæðingu ekki verið í boði á Íslandi nema sem sértrygging sem greiða þarf aukalega fyrir. Nýja verndin gildir fyrir öll kyn og er án viðbótarkostnaðar fyrir viðskiptavini.

Með því að bæta nýju verndinni við hefðbundnar tryggingar vill Vörður leiðrétta það misræmi sem hefur verið á tryggingamarkaði gagnvart mæðrum og verðandi foreldrum og mæta þörfum þeirra á þessu mikilvæga tímabili.

Nýja verndin felur annars vegar í sér fjárhagslegan stuðning ef alvarleg atvik koma upp á meðgöngu eða í fæðingu. Auk þess veitir hún foreldrum rétt til bóta vegna meðfædds heilsufarsástands barns og aðgang að samtalsmeðferð í ef upp koma erfiðleikar.

Í viðtölum við viðskiptavini kom fram ákall kvenna um að meðganga og fæðing ættu að vera hluti af hefðbundnum tryggingum. Í kjölfarið var nýja verndin þróuð með aðstoð sérfræðinga og tekur mið af erlendri fyrirmynd.

Þessi breyting er liður í vegferð Varðar að þróa tryggingar sem endurspegla betur raunverulegar þarfir fólks, svo fleiri geti notið verndar. Í vor kynnti Vörður einnig neyðaraðstoð fyrir þolendur ofbeldis sem hluta af heimilistryggingum félagsins, er verndin fyrsta sinnar tegundar á Íslandi þar sem þolendur ofbeldis í nánum samböndum geta fengið fjárhagslegar bætur til að frekar breytt aðstæðum sínum.

„Við hjá Verði viljum að verðandi foreldrar geti gengið inn í meðgöngutímabilið án þess að þurfa að velta fyrir sér hvort þau séu tryggð. Þess vegna er meðgöngu- og foreldravernd nú sjálfkrafa hluti af hefðbundnum sjúkdómatryggingum.

Verndin nær frá upphafi meðgöngu, í fæðingu og eftir að barnið er fætt.

Í samtölum okkar við konur kom skýrt fram að þörfin fyrir tryggingu á þessum tímamótum er mikil og við vildum svara því kalli, enda þetta tímabil þýðingamikill hluti af lífi þeirra sem stefna á barneignir.

Við hjá Verði erum stöðugt að skoða hvernig við getumbætt tryggingarnar okkar svo fleiri geti notið verndar, þetta er bara eitt skref af mörgum sem við ætlum að stíga í þessa átt “segir Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar trygginga.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Er mynstrið þitt nægi­lega djúpt?

Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum.

Lesa meira
2. nóvember 2026

Vörður og Arion styrkja Reykjalund um þrjár milljónir

Við hjá Verði og Arion banka erum stolt af því að starfa með fjölmörgum framúrskarandi fyrirtækjum um land allt. Í tilefni af viðurkenningu þeirra höfum við á undanförnum árum stutt við mikilvæg samfélagsverkefni í þeirra nafni.

Lesa meira
23. október 2026

Vörður aðalbakhjarl Körfuknattleiksdeildar Hattar

Vörður tryggingar og Körfuknattleiksdeild Hattar hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning. Samkvæmt samningnum verður Vörður aðalbakhjarl deildarinnar og mun heimavöllur Hattar jafnframt bera nafnið Varðarhöllin.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð