Tjón
Tjón

27.02.2024

Ný þjónustu­skrif­stofa á Smára­torgi

Við höfum opnað þjónustuskrifstofu með Arion banka á Smáratorgi í Kópavogi. Þar getur þú nálgast alla trygginga- og bankaþjónustu á einum og sama stað.

Samstarf Varðar og Arion tryggir að viðskiptavinir geta nálgast bankaþjónustu og tryggingar á einum stað til að spara sér sporin. Ráðgjafar okkar aðstoða þig við hvaðeina sem lýtur að tryggingum og tjónum og ráðgjafar Arion veita alla þjónustu er snýr að fjármálum og leiðbeina með notkun á stafrænum þjónustuleiðum.

Við hlökkum til að bjóða viðskiptavinum trausta og öfluga fjármálaþjónustu á nýjum stað. Áfram verður lögð áhersla á einfalda og þægilega tryggingaþjónustu með ánægju viðskiptavina að leiðarljósi.

Við tökum vel á móti þér á Smáratorgi 10 alla virka daga milli klukkan 10:00-16:00.

Hlökkum til að sjá þig!

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Er mynstrið þitt nægi­lega djúpt?

Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum.

Lesa meira
2. nóvember 2026

Vörður og Arion styrkja Reykjalund um þrjár milljónir

Við hjá Verði og Arion banka erum stolt af því að starfa með fjölmörgum framúrskarandi fyrirtækjum um land allt. Í tilefni af viðurkenningu þeirra höfum við á undanförnum árum stutt við mikilvæg samfélagsverkefni í þeirra nafni.

Lesa meira
23. október 2026

Vörður aðalbakhjarl Körfuknattleiksdeildar Hattar

Vörður tryggingar og Körfuknattleiksdeild Hattar hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning. Samkvæmt samningnum verður Vörður aðalbakhjarl deildarinnar og mun heimavöllur Hattar jafnframt bera nafnið Varðarhöllin.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð