Tjón
Tjón

09.03.2025

Vörður veit­ir fjárhags­leg­ar bæt­ur fyrir þo­lendur of­beldis í nánum sam­bönd­um

Vörður hefur bætt við nýrri vernd fyrir þau sem verða fyrir ofbeldi í nánu sambandi við hefðbundnar heimilistryggingar. Nýja tryggingarverndin er mótuð með faglegri ráðgjöf frá Kvennaathvarfinu.

Kvennaathvarfið hefur undanfarið veitt Verði ráðgjöf við þróun á nýrri tryggingarvernd á Íslandi fyrir þolendur ofbeldis í nánum samböndum sem felur í sér að fólk í þessari stöðu geti fengið bætur. Fyrirmyndin kemur frá erlendum tryggingafélögum. Ólíkt því sem er þar þarf ekki lögregluskýrslu til að fá bæturnar hér heldur dugar staðfesting frá fagaðila.

Markmiðið með nýju verndinni er að veita neyðaraðstoð, í formi fjárhagslegra bóta, fyrir þolendur ofbeldis í nánum samböndum og gera þeim frekar kleift að breyta aðstæðum sínum. Verndin er nú hluti af öllum heimilistryggingum Varðar, gildir fyrir öll kyn og kemur án viðbótarkostnaðar.

„Það er sorgleg staðreynd að heimilið sé einn hættulegasti staðurinn fyrir konur. Við sem samfélag, við getum breytt þessu. Það er okkar hlutverk að vera til staðar fyrir fólk þegar áföll dynja á. Við hjá Verði ákváðum að bæta við Heimilisverndina okkar, þannig að öll sem verða fyrir ofbeldi í nánu sambandi eru tryggð og geta nú með einföldum hætti sótt í trygginguna og fengið fjárhagslegar bætur, og þannig frekar breytt aðstæðum sínum."segir Guðbjörg Heiða Guðmunds­dótt­ir, for­stjóra Varðar.

„Þetta frumkvæði Varðar er mikilvægt innlegg í baráttuna gegn ofbeldi í nánum samböndum og sýnir að fyrirtæki geta haft raunveruleg áhrif á líf fólks með því að láta sig þessi mál varða.“segir Linda Dröfn Gunnarsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Er mynstrið þitt nægi­lega djúpt?

Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum.

Lesa meira
2. nóvember 2026

Vörður og Arion styrkja Reykjalund um þrjár milljónir

Við hjá Verði og Arion banka erum stolt af því að starfa með fjölmörgum framúrskarandi fyrirtækjum um land allt. Í tilefni af viðurkenningu þeirra höfum við á undanförnum árum stutt við mikilvæg samfélagsverkefni í þeirra nafni.

Lesa meira
23. október 2026

Vörður aðalbakhjarl Körfuknattleiksdeildar Hattar

Vörður tryggingar og Körfuknattleiksdeild Hattar hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning. Samkvæmt samningnum verður Vörður aðalbakhjarl deildarinnar og mun heimavöllur Hattar jafnframt bera nafnið Varðarhöllin.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð