Tjón
Tjón

20.05.2026

Ný trygginga­vernd fyrir fólk sem glím­ir við ófrjó­semi

Vörður hefur bætt frjósemisvernd við hefðbundnar sjúkdómatryggingar sínar viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Er það í fyrsta sinn á Íslandi sem tryggingavernd tekur á þessum vanda, sem er algengari en margir gera sér grein fyrir en talið er að einn af hverjum sex glími við ófrjósemi.  Frjósemisverndin hefur það að markmiði að vera stuðningur við fólk ef það greinist með ófrjósemi og þarf að gangast undir frjósemismeðferð.

Nýja verndin er viðbót við hefðbundnar sjúkdómatryggingar, en ekki sérstök trygging. Með breytingunni vill Vörður mæta auknum þörfum samfélagsins í tengslum við frjósemisvanda, svo fleiri njóti verndar.

Nýja verndin felur annars vegar í sér fjárhagslegar bætur, ef einstaklingar eða pör glíma við ófrjósemi og þurfa að fara í frjósemismeðferð. Auk þess veitir hún aðgang að samtalsmeðferð ef upp koma áföll eða erfiðar aðstæður í ferlinu.

Vörður er hluti af Arion og býðst þeim sem erum með sjúkdómatryggingu hjá Verði og þurfa á frjósemisverndinni að halda lán hjá Arion á sérstökum kjörum og án greiðslumats.

Þessi breyting er liður í vegferð Varðar að þróa tryggingar sem endurspegla betur raunverulegar þarfir fólks, svo fleiri geti notið verndar. Á síðustu misserum hefur Vörður kynnt fleiri nýjar viðbætur við tryggingarnar sínar,  neyðaraðstoð fyrir þolendur ofbeldis sem nú er hluti af heimilistryggingum Varðar, stuðningsleyfi fyrir þolendur ofbeldis sem nú er hluti af sjúkratryggingum atvinnurekenda og meðgöngu- og foreldravernd sem hluta af sjúkdómatryggingum félagsins.

Við erum ákaflega stolt af þessari viðbót við núverandi sjúkdómatryggingar okkar, enda er markmið okkar að vera til staðar fyrir fólk þegar mest á reynir. Það á svo sannarlega við þegar einstaklingar glíma við ófrjósemi. Markmiðið er að draga úr fjárhagslegu álagi og auka svigrúm fyrir fólk svo það geti einbeita sér að því sem skiptir það mestu máli.

segir Þórdís Lind Leiva, forstöðumaður Líf- og heilsutrygginga hjá Verði.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
12. október 2026

Vel sóttur netöryggisviðburður

Vörður hélt vel sóttan netöryggisviðburð þann 8. október síðastliðinn. Fulltrúar fjölda fyrirtækja hlýddu á erindi og tóku þátt í líflegum samræðum.

Lesa meira
7. október 2026

Er skynjari á vaktinni í bú­staðnum?

Að koma að eign sinni á floti er lífsreynsla sem við óskum engum. Leki sem er ekki stöðvaður í tæka tíð getur valdið mjög miklum skaða, ónýtum gólfefnum, vatnsmettuðum innréttingum og veggjum.

Lesa meira
6. október 2026

Eftir vel heppnuð skyndihjálparnámskeið bætast fleiri við í vor

Í síðustu viku stóð Vörður fyrir fjórum skyndihjálparnámskeiðum í samstarfi við Rauða krossinn. Námskeiðin voru haldin á þremur tungumálum og voru sérstaklega ætluð foreldrum og forráðamönnum barna.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð