
Að eignast barn er ekki sjálfgefið
Frjósemisvernd er ný viðbót við sjúkdómatryggingu Varðar. Henni er ætlað að styðja við einstaklinga og pör sem glíma við ófrjósemi og er án aukakostnaðar fyrir viðskiptavini.
Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.

Frjósemisvernd er ný viðbót við sjúkdómatryggingu Varðar. Henni er ætlað að styðja við einstaklinga og pör sem glíma við ófrjósemi og er án aukakostnaðar fyrir viðskiptavini.
Frjósemisvernd hjálpar fólki sem greinist með ófrjósemi að standa straum af kostnaði við frjósemismeðferð.
Þetta er í fyrsta sinn á Íslandi sem tryggingar taka á þessum vanda, sem er algengari en margir gera sér grein fyrir.
Hér er að finna helstu upplýsingar um viðbótina.
Frjósemisvernd virkar þannig að við greiðum út bætur eftir að ófrjósemi greinist og frjósemismeðferð hefst. Bæturnar, sem eru skattfrjálsar, eru 5% af tryggingafjárhæð sjúkdómatryggingar, en þó að hámarki 1.000.000 kr.
Frjósemisvandi getur reynt á andlegu hliðina og oft er nauðsynlegt að fá hjálp við að vinna úr erfiðum tilfinningum. Þau sem nýta sér verndina eiga því rétt á allt að fimm tímum í samtalsmeðferð hjá fagaðilum.

Arion banki býður þeim sem eru með sjúkdómatryggingu hjá Verði, hafa greinst með ófrjósemi og hafið frjósemismeðferð að sækja um sérstakt lán til að mæta kostnaði við frjósemismeðferð.
Lánið er á hagstæðari kjörum en almennt bjóðast, ekki þarf að gangast undir greiðslumat og fyrsta afborgun er eftir tvö ár.
Það tekur aðeins tvær mínútur að fá áætlað verð í þína sjúkdómatryggingu. Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum og sérð strax hvað tryggingin gæti kostað þig á mánuði — mögulega er það ódýrara en þig grunar.

Vörður hefur nýverið kynnt dýrmætar viðbætur við tryggingarnar sínar. Frjósemisvernd er liður í þeirri vegferð Varðar að þróa tryggingar sem endurspegla betur raunverulegar þarfir fólks, svo fleiri geti notið verndar.
Viðbótarvernd í sjúkdómatryggingu Varðar sem styður við verðandi mæður og foreldra með fjárhagslegri vernd og andlegum stuðningi.
Viðbót við hefðbundnar heimilistryggingar Varðar sem bætir kostnað þurfi viðkomandi að breyta aðstæðum sínum vegna ofbeldis í nánu sambandi.
Viðbótarvernd sem er ætlað að auðvelda fyrirtækjum að styðja við starfsfólk svo það geti frekar breytt aðstæðum sínum án þess að óttast tekjutap.