Tjón
Tjón

03.02.2026

Vil­hjálm­ur Theo­dór er nýr for­stöðu­maður sölu­stýr­ingar

Vilhjálmur Theodór Jónsson hefur verið ráðinn forstöðumaður sölustýringar hjá Verði tryggingum.

Hann kemur til Varðar frá Sýn, þar sem hann starfaði frá árinu 2016 í fjölbreyttum stjórnunar- og sölutengdum störfum. Hann hóf störf hjá Sýn sem viðskiptastjóri á fyrirtækjasviði, varð síðar deildarstjóri sama sviðs og hefur undanfarin ár gegnt starfi forstöðumanns sölusviðs með ábyrgð á sölu til einstaklinga. Hann býr því yfir víðtækri reynslu af sölustýringu, teymisstjórnun og þróun söluleiða í samkeppnisumhverfi.

Vilhjálmur lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 2016. Áður hefur hann einnig starfað við þjálfun samhliða því að spila í úrvalsdeild í körfubolta.

Í nýju starfi mun Vilhjálmur leiða starfsemi sölustýringar hjá Verði og bera ábyrgð á heildarstefnu og framkvæmd sölumála félagsins. Hann mun gegna lykilhlutverki í að móta og þróa sölustefnu Varðar og tryggja að sölustarfsemin styðji við markmið og gildi félagsins.

„Vilhjálmur Theodór er sannarlega góð viðbót í okkar öfluga teymi hjá Verði. Hann kemur inn með mikla reynslu af sölustýringu og skýra sýn á hvernig hægt er að styðja við viðskiptavini í að velja tryggingar sem henta þeirra þörfum. Ég er sannfærður um að hann muni styrkja sölustarf Varðar til framtíðar,“segir Einar Sigursteinn Bergþórsson, framkvæmdastjóri Sölu og ráðgjafar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Er mynstrið þitt nægi­lega djúpt?

Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum.

Lesa meira
2. nóvember 2026

Vörður og Arion styrkja Reykjalund um þrjár milljónir

Við hjá Verði og Arion banka erum stolt af því að starfa með fjölmörgum framúrskarandi fyrirtækjum um land allt. Í tilefni af viðurkenningu þeirra höfum við á undanförnum árum stutt við mikilvæg samfélagsverkefni í þeirra nafni.

Lesa meira
23. október 2026

Vörður aðalbakhjarl Körfuknattleiksdeildar Hattar

Vörður tryggingar og Körfuknattleiksdeild Hattar hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning. Samkvæmt samningnum verður Vörður aðalbakhjarl deildarinnar og mun heimavöllur Hattar jafnframt bera nafnið Varðarhöllin.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð