Tjón
Tjón

14.06.2024

Reglu­vörðurinn er mætt­ur til leiks!

Golfleikur Varðar og Golfsambands Íslands er farinn af stað - tólfta sumarið í röð!

Þarftu að rifja upp golfreglurnar?

Líkt og undanfarin ár býður Vörður og GSÍ þér í spennandi golfleik á golf.vordur.is þar sem þú getur látið reyna á þekkingu þínar á golfreglunum. Við gerðum stórar breytingar á leiknum í fyrra og bættum við skemmtilegum nýjungum eins og stigagjöf, tímatöku og fleira.

Að þessu sinni fengum við aftur með okkur golfdómara og bættum sömuleiðis við glænýjum spurningum.

Þau sem skrá sig til leiks fara í lukkupott og eiga möguleika á að vinna lúxus golfferð fyrir tvo á Fairplay golfhótelið á Spáni í boði Golfsögu og Verdi Travel.

Eignast þú flottasta flatarmerki á Íslandi?

Þau sem klára leikinn geta fengið hin eftirsóknarverðu Regluvarðarverðlaun, sem er líka flatarmerki. Merkið er ártalsmerkt og jafnframt staðfesting á því að þú sért með golfreglurnar á hreinu. Þú pantar peninginn við lok leiksins og færð hann sendan heima að dyrum með póstinum.

Golfleikur til gagns og gamans

Regluvörðurinn kemur nú út tólfta sumarið í röð og er hugsaður til gamans fyrir kylfinga og aðra áhugasama um golfíþróttina en auðvitað geta allir tekið þátt í leiknum. Í golfleiknum reynir á kunnáttu þína á golfreglunum og því hentar hann vel til upprifjunar á þeim. Regluvörðurinn hefur svo sannarlega fest sig í sessi hjá kylfingum og áhugafólki um golfíþróttina og þátttakendum fjölgar með hverju árinu.

Golfleiknum er jafnframt ætlað að vekja athygli á Golfvernd Varðar, sem er sérstök trygging fyrir kylfinga gegn þjófnaði á golfbúnaði og öðrum óvæntum atvikum utan vallar sem innan.

Traustur bakhjarl GSÍ

Vörður er traustur bakhjarl GSÍ með golfreglurnar. Golf byggist á nákvæmum og dálítið flóknum reglum. Það þarf stundum að láta reyna á reglurnar sem allir kylfingar ættu að hafa á hreinu. Golfreglur og tryggingaskilmálar eiga það sameiginlegt að fjalla af nákvæmni og í smáatriðum um atriði sem fæstir hugsa mikið um. Þegar á reynir er hins vegar gott að geta gripið í reglubókina!

Við vonum að allir kylfingar eigir ánægjulegar stundir á golfvellinum í sumar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Er mynstrið þitt nægi­lega djúpt?

Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum.

Lesa meira
2. nóvember 2026

Vörður og Arion styrkja Reykjalund um þrjár milljónir

Við hjá Verði og Arion banka erum stolt af því að starfa með fjölmörgum framúrskarandi fyrirtækjum um land allt. Í tilefni af viðurkenningu þeirra höfum við á undanförnum árum stutt við mikilvæg samfélagsverkefni í þeirra nafni.

Lesa meira
23. október 2026

Vörður aðalbakhjarl Körfuknattleiksdeildar Hattar

Vörður tryggingar og Körfuknattleiksdeild Hattar hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning. Samkvæmt samningnum verður Vörður aðalbakhjarl deildarinnar og mun heimavöllur Hattar jafnframt bera nafnið Varðarhöllin.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð