Tjón
Tjón

01.10.2026

Þekktu merk­in: Op­inn fræðslufund­ur 6. októ­ber

Vörður og Bjarkarhlíð halda opinn fræðslufund um birtingarmyndir ofbeldis í nánu sambandi og hvernig vinnustaðir geta þekkt merkin, brugðist rétt við og stutt þolendur. 

Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 6. október kl. 09:00 í Arion banka, Borgartúni 19. 

Vinnustaðurinn getur skipt sköpum 

Vinnustaðurinn getur skipt sköpum fyrir einstakling sem býr við ofbeldi í nánu sambandi. Hann er oft einn af fáum stöðum þar sem þolandi kemst undan eftirliti geranda, fær andrými og á örugga tengingu við samfélagið. Rétt viðbrögð stjórnenda og samstarfsfólks geta því haft mikil áhrif. 

Fundurinn er hluti af fræðsluátakinu „Þekkjum merkin – bregðumst við“, sem fer fram samhliða kynningu á stuðningsleyfi, nýrri tryggingavernd hjá Verði. Átakið beinir sjónum að því hvernig vinnustaðir geta stutt starfsfólk sem hefur orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi. 

Þekktu merkin og lærðu að bregðast við 

Á fundinum mun Jenný Kristín Valberg, teymisstýra í Bjarkarhlíð, halda erindi þar sem hún fjallar um ólíkar birtingarmyndir ofbeldis í nánu sambandi og fer yfir merki sem geta komið fram í hegðun, líðan og aðstæðum starfsfólks. Þá veitir hún fundargestum hagnýta leiðsögn um hvernig hægt er að nálgast einstakling af nærgætni, bregðast við upplýsingum um ofbeldi og vísa áfram í viðeigandi stuðning. Áhersla verður lögð á hlutverk vinnustaðarins sem öruggs staðar og hvernig skýr, styðjandi viðbrögð geta skipt sköpum fyrir þolendur. Á fundinum kynnir einnig Hildur Jóna, vörustjóri hjá Verði, stuðningsleyfi, nýja tryggingavernd sem auðveldar atvinnurekendum að styðja starfsfólk í slíkum aðstæðum. 

Fundurinn er afar gagnlegur fyrir stjórnendur, fólk sem starfar að mannauðsmálum og alla sem láta sig öryggi samstarfsfólks varða.  

Við hlökkum til að sjá þig. 

 

Skráning fer fram á vef Varðar  

Skráning - Vörður 

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
12. október 2026

Vel sóttur netöryggisviðburður

Vörður hélt vel sóttan netöryggisviðburð þann 8. október síðastliðinn. Fulltrúar fjölda fyrirtækja hlýddu á erindi og tóku þátt í líflegum samræðum.

Lesa meira
7. október 2026

Er skynjari á vaktinni í bú­staðnum?

Að koma að eign sinni á floti er lífsreynsla sem við óskum engum. Leki sem er ekki stöðvaður í tæka tíð getur valdið mjög miklum skaða, ónýtum gólfefnum, vatnsmettuðum innréttingum og veggjum.

Lesa meira
6. október 2026

Eftir vel heppnuð skyndihjálparnámskeið bætast fleiri við í vor

Í síðustu viku stóð Vörður fyrir fjórum skyndihjálparnámskeiðum í samstarfi við Rauða krossinn. Námskeiðin voru haldin á þremur tungumálum og voru sérstaklega ætluð foreldrum og forráðamönnum barna.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð