Tjón
Tjón

27.03.2026

Þrír ný­ir vef­ir – Arion bank­i, Vörður og Stefnir

Arion banki, Vörður og Stefnir mynda Arion samstæðuna sem um árabil hefur boðið viðskiptavinum heildstætt vöruframboð þegar kemur að fjármálum og tryggingum.

Nú eru nýir vefir Arion banka, Varðar og Stefnis komnir í loftið. Vefirnir þrír styðjast allir við sömu hönnunina sem tryggir samræmda upplifun viðskiptavina. Skýrar tengingar eru á milli vefsvæðanna sem gera viðskiptavinum kleift að nálgast þjónustu fyrirtækjanna þriggja á einfaldan og skilvirkari hátt.

Á sama tíma breytast vörumerki Varðar og Stefnis að því leytinu til að orðin „hluti af Arion“ fara undir heiti félaganna.

Við látum fjármál og tryggingar vinna saman

Fríðindakerfi Arion samstæðunnar, Arion fríðindi, sem kynnt var á síðasta ári og hefur fengið frábærar viðtökur viðskiptavina tryggir að viðskiptavinir okkar njóta góðs af því að vera í viðskiptum við alla samstæðuna.

Meðal fríðinda sem viðskiptavinir Arion samstæðunnar njóta:

  • Endurgreiðsla af iðgjaldi trygginga Varðar

  • Betri vextir greiddir vikulega inn á Fríðindareikning Arion banka

  • Enginn kostnaður við kaup í sjóðum Stefnis

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Er mynstrið þitt nægi­lega djúpt?

Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum.

Lesa meira
2. nóvember 2026

Vörður og Arion styrkja Reykjalund um þrjár milljónir

Við hjá Verði og Arion banka erum stolt af því að starfa með fjölmörgum framúrskarandi fyrirtækjum um land allt. Í tilefni af viðurkenningu þeirra höfum við á undanförnum árum stutt við mikilvæg samfélagsverkefni í þeirra nafni.

Lesa meira
23. október 2026

Vörður aðalbakhjarl Körfuknattleiksdeildar Hattar

Vörður tryggingar og Körfuknattleiksdeild Hattar hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning. Samkvæmt samningnum verður Vörður aðalbakhjarl deildarinnar og mun heimavöllur Hattar jafnframt bera nafnið Varðarhöllin.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð