Tjón
Tjón

22.10.2025

Úti­bú Varðar verða lok­uð föstu­dag­inn 24. októ­ber vegna kvenna­verk­falls

Konur og kvár eru hvött til að leggja niður launuð sem ólaunuð störf föstudaginn 4. október eins og konur gerðu árið 1975.

Konur eru um 60% starfsfólks Arion samstæðunnar og munu margar þeirra svara kallinu og leggja niður störf á föstudaginn. Við styðjum þetta framtak og verða því öll útibú Varðar og Arion banka lokuð á föstudaginn.

Þjónustuverið okkar verður opið en fáliðað og þjónustan því skert og gildir það sama um netspjall og samskipti í gegnum tölvupóst.

Eins og aðra daga þá verða Mínar síður á vordur.is aðgengilegar allan sólarhringinn og neyðarþjónusta óskert.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Er mynstrið þitt nægi­lega djúpt?

Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum.

Lesa meira
2. nóvember 2026

Vörður og Arion styrkja Reykjalund um þrjár milljónir

Við hjá Verði og Arion banka erum stolt af því að starfa með fjölmörgum framúrskarandi fyrirtækjum um land allt. Í tilefni af viðurkenningu þeirra höfum við á undanförnum árum stutt við mikilvæg samfélagsverkefni í þeirra nafni.

Lesa meira
23. október 2026

Vörður aðalbakhjarl Körfuknattleiksdeildar Hattar

Vörður tryggingar og Körfuknattleiksdeild Hattar hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning. Samkvæmt samningnum verður Vörður aðalbakhjarl deildarinnar og mun heimavöllur Hattar jafnframt bera nafnið Varðarhöllin.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð