Tjón
Tjón

22.04.2026

Var­að við lækna­stofu á Gran Kanarí

Vegna þeirra fjölda svikamála sem okkur hafa borist tengt læknastofunni Clinic Diamond á eyjunni Gran Kanarí viljum við vara fólk sérstaklega við að sækja þangað þjónustu. Starfsfólk læknastofunnar hefur lagt það í vana sinn að ýta að fólki ónauðsynlegri læknaþjónustu sem það rukkar fyrir himinháar upphæðir.

Þetta er í fyrsta sinn í sögu Varðar sem varað er við einstaka starfsemi út í heimi og vonandi í það síðasta, en annað tryggingafélag í Noregi hefur einnig varað við Clinic Diamond læknastofunni.

Þegar fólk þarf á læknisaðstoð að halda á ferðalögum erlendis, mælum við með að fólk skoði yfirlitsíðu SOS en þar má finna lista yfir læknastofur í hverju landi fyrir sig þar sem mælt er með að fólki sæki sér þjónustu eða hafi samband við sitt tryggingafélag.

Einnig er hægt að fá ítarlegri ráðgjöf frá SOS í gegnum síma eða hjá sínu tryggingafélagi.

Mikilvægt er þó að muna að ef um neyðartilvik er að ræða á fólk þó alltaf að hringja beint á sjúkrabíl.

Upplýsingasíða Varðar um læknaþjónustu erlendis

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
12. október 2026

Vel sóttur netöryggisviðburður

Vörður hélt vel sóttan netöryggisviðburð þann 8. október síðastliðinn. Fulltrúar fjölda fyrirtækja hlýddu á erindi og tóku þátt í líflegum samræðum.

Lesa meira
7. október 2026

Er skynjari á vaktinni í bú­staðnum?

Að koma að eign sinni á floti er lífsreynsla sem við óskum engum. Leki sem er ekki stöðvaður í tæka tíð getur valdið mjög miklum skaða, ónýtum gólfefnum, vatnsmettuðum innréttingum og veggjum.

Lesa meira
6. október 2026

Eftir vel heppnuð skyndihjálparnámskeið bætast fleiri við í vor

Í síðustu viku stóð Vörður fyrir fjórum skyndihjálparnámskeiðum í samstarfi við Rauða krossinn. Námskeiðin voru haldin á þremur tungumálum og voru sérstaklega ætluð foreldrum og forráðamönnum barna.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð