Tjón
Tjón

19.03.2026

Vel sótt­ur fræðslufund­ur Varð­ar og Bjark­ar­hlíð­ar

Hátt í 100 manns sóttu opinn fræðslufund Varðar og Bjarkarhlíðar á þriðjudag undir yfirskriftinni„Þekkjum merkin – Bregðumst við“. Fundurinn er hluti af nýju fræðsluátaki samhliða kynningu á stuðningsleyfi, nýrri tryggingavernd hjá Verði. Fræðsluátakið beinir sjónum að því hvernig vinnustaðir geta stutt starfsfólk sem er þolendur ofbeldis í nánu sambandi. Fyrir marga er vinnustaðurinn mikilvægur og öruggur snertiflötur við samfélagið, þar sem rétt viðbrögð geta skipt sköpum.

Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, fór yfir helstu merki ofbeldis og hvernig stjórnendur og samstarfsfólk geta brugðist við og stutt þolendur ofbeldis í nánu sambandi. Guðbjörg Heiða, forstjóri Varðar, kynnti stuðningsleyfið sem hefur verið innleitt í slysatryggingar fyrirtækja til að veita þolendum aukinn sveigjanleika á meðan þeir vinna úr aðstæðum sínum. Að lokum sögðu Adriana Karolina Pétursdóttir og Helga Halldórsdóttir frá því hvernig Rio Tinto og Arion banki hafa innleitt stefnu til að styðja betur við starfsfólk sitt sem eru þolendur ofbeldis í nánu sambandi. Fundinum var stýrt af Ólafi Kára Júlíussyni vinnusálfræðingi hjá Vinnuvís.

Mikill áhugi var meðal fundargesta á aukinni aðkomu vinnustaða að málaflokknum. Fræðsluátakið mun halda áfram og

á næstunni munu vera námskeið í boði á vegum Bjarkarhlíðar. Á heimasíðu Bjarkarhlíðar má finna ýmislegt fræðsluefni. Auk þess geta þeir sem hafa áhuga á að skrá sig á námskeið skráð sig hér, en tilkynnt verður um dagsetningar um leið og þær liggja fyrir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
01. apríl 2026

Þjón­usta og opn­un­ar­tím­ar um pásk­ana

Útibú okkar og þjónustuver verða lokuð um páskana, 2. til 6. apríl. Þann 7. apríl verða útibú og þjónustuver opnuð á hefðbundnum tíma.

Lesa meira
27. mars 2026

Þrír nýir vefir – Arion banki, Vörður og Stefnir

Arion banki, Vörður og Stefnir mynda Arion samstæðuna sem um árabil hefur boðið viðskiptavinum heildstætt vöruframboð þegar kemur að fjármálum og tryggingum.

Lesa meira
19. mars 2026

Vel sóttur fræðslufundur Varðar og Bjarkarhlíðar

Hátt í 100 manns sóttu opinn fræðslufund Varðar og Bjarkarhlíðar á þriðjudag undir yfirskriftinni„Þekkjum merkin – Bregðumst við“. Fundurinn er hluti af nýju fræðsluátaki samhliða kynningu á stuðningsleyfi, nýrri tryggingavernd hjá Verði.

Lesa meira
Fá tilboðTilkynna tjón
Vel sóttur fræðslufundur Varðar og Bjarkarhlíðar - Vörður