Tjón
Tjón

01.11.2024

Vörður opn­ar í Stykk­is­hólmi

Vörður opnar nýja þjónustuskrifstofu í Stykkishólmi mánudaginn 4. nóvember og þér er boðið í vöfflur!

Þjónustuskrifstofan er staðsett í útibúi Arion banka á Aðalgötu 24 og verður því hægt að sækja bæði trygginga- og bankaþjónustu á sama stað. Opnunin í Stykkishólmi er liður í þeirri vegferð okkar að vera með þjónustuskrifstofur víða um land í samstarfi við Arion svo að sem flestir viðskiptavinir geti sótt þjónustu í
sinni heimabyggð.

„Okkur hlakkar mikið til að taka á móti viðskiptavinum okkar á nýrri þjónustuskrifstofu. Með opnuninni í Stykkishólmi, vonumst við til að auka þægindin hjá viðskiptavinum okkar, sem geta nú sótt trausta ráðgjöf og þjónustu varðandi tryggingar og fjármál á sama stað“, segir Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá Verði tryggingum.

Við verðum við alla virka daga á Aðalgötu 24 frá 12:30 – 16:00 og á opnunardaginn verður tökum við vel á móti þér með ilmandi vöfflum og heitu á könnunni.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Er mynstrið þitt nægi­lega djúpt?

Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum.

Lesa meira
2. nóvember 2026

Vörður og Arion styrkja Reykjalund um þrjár milljónir

Við hjá Verði og Arion banka erum stolt af því að starfa með fjölmörgum framúrskarandi fyrirtækjum um land allt. Í tilefni af viðurkenningu þeirra höfum við á undanförnum árum stutt við mikilvæg samfélagsverkefni í þeirra nafni.

Lesa meira
23. október 2026

Vörður aðalbakhjarl Körfuknattleiksdeildar Hattar

Vörður tryggingar og Körfuknattleiksdeild Hattar hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning. Samkvæmt samningnum verður Vörður aðalbakhjarl deildarinnar og mun heimavöllur Hattar jafnframt bera nafnið Varðarhöllin.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð