Stuðningur í erfiðum aðstæðum
Aðstoð og úrræði fyrir einstaklinga og fyrirtæki vegna þeirra sem búa við ofbeldi í nánum samböndum og vilja taka skref í átt að breyttum aðstæðum.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt á ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Aðstoð og úrræði fyrir einstaklinga og fyrirtæki vegna þeirra sem búa við ofbeldi í nánum samböndum og vilja taka skref í átt að breyttum aðstæðum.

Ofbeldi í nánum samböndum er ofbeldi sem einstaklingur verður fyrir af hálfu einhvers sem er honum nákominn, skyldur eða tengdur, eins og maki, barn, foreldri, barnsfaðir, systkini eða forráðamaður. Ofbeldi getur átt sér stað óháð kyni, aldri, kynhneigð eða hverju öðru.
Stafrænt ofbeldi er hvers konar áreitni, hótanir, niðurlæging eða stjórnun sem á sér stað í gegnum stafræna miðla, eins og síma, tölvu eða samfélagsmiðla. Það er líka ef einhver er að fylgjast með hvað þú gerir í símanum þínum og hvað þú gerir á netinu.

Líkamlegt ofbeldi er þegar einstaklingur verður fyrir líkamlegum skaða eða sársauka af völdum annars, t.d. með höggum, spörkum eða hrindingum. Líkamlegt ofbeldi er líka þegar haldið er aftur af grunnþörfum viðkomandi.
Fjárhagslegt ofbeldi er þegar fjármál eru notuð til að stjórna manneskju. Það getur verið með því að setja takmarkanir á hvað þú mátt kaupa, skerða aðgang að eigin peningum eða svíkja af þér peninga.
Andlegt ofbeldi er þegar einhver hótar þér, gerir lítið úr þér eða lætur þér líða illa. Það getur verið í formi orðaskipta eða líkamstjáningar. Þar sem andlegt ofbeldi skilur ekki eftir sig sjáanlega áverka er oft erfitt að greina það.


Neyðaraðstoð vegna ofbeldis í nánu sambandi er vernd sem heyrir undir heimilistryggingu Varðar. Markmiðið með nýju verndinni er að veita neyðaraðstoð, í formi fjárhagslegra bóta, fyrir þolendur ofbeldis í nánum samböndum og gera þeim frekar kleift að breyta aðstæðum sínum. Ekki þarf að skila inn kæru eða lögregluskýrslu til að geta sótt um bætur heldur einungis staðfestingu frá fagaðila. Öll kyn geta sótt í verndina.
Það skiptir máli að fyrirtæki geti stutt við starfsfólk sitt þegar á reynir.
Þolendur ofbeldis í nánu sambandi geta veigrað sér við að breyta aðstæðum sínum, meðal annars af ótta við fjarveru frá vinnu. Með stuðningsleyfi vill Vörður auðvelda fyrirtækjum að bregðast við af ábyrgð og styðja starfsfólk sitt á krefjandi tímamótum.


Vinnustaðurinn er oft einn af fáum stöðum þar sem þolandi getur komist undan eftirliti geranda og fengið andrými. Það getur því skipt sköpum að atvinnurekendur styðji við bakið á starfsfólki og veiti því svigrúm til að sækja nauðsynlega þjónustu.
Einnig getur samstarfsfólk verið vakandi fyrir merkjum sem benda til þess að einstaklingur sé þolandi ofbeldis.
Þannig getur vinnustaðurinn orðið mikilvægur vettvangur þar sem þolandi fær stuðning til að stíga fyrstu skrefin í átt að auknu öryggi.
Þekktu merkin:
Endurtekin meiðsli eða ótrúverðugar skýringar á þeim
Aukin fjarvist, óstundvísi eða skert einbeiting
Tilfinningalegt uppnám, einangrun eða skyndileg breyting á hegðun eða útliti
Óvenjumikið magn símtala, skilaboða eða óvelkominna heimsókna geranda á vinnustað
Vísbendingar um að maki fylgist með eða reyni að hafa óæskileg samskipti
Á vef Bjarkahlíðar má finna greinagóðar upplýsingar um hvernig þekkja megi merkin og hvernig sé best að bregðast við.

Vörður vill hvetja öll fyrirtæki að hafa aðgerðaáætlun til staðar ef starfsfólk verður fyrir ofbeldi í nánu sambandi. Arion samstæðan hefur til að mynda innleitt aðgerðaáætlun vegna ofbeldis í nánu sambandi.
Ef þitt fyrirtæki hyggst innleiða slíka áætlun er ykkur velkomið að senda okkur póst á vordur@vordur.is. Við erum reiðubúin að miðla reynslu okkar og deila með ykkur efni til að auðvelda ferlið.