Iðgjaldafrelsi
Ef þú verður óvinnufær, 50% eða meira getur þú sótt um að fá iðgjöld tryggingarinnar lækkuð eða felld niður. Niðurfelling iðgjalda getur að hámarki varað í 5 ár og miðast niðurfelling þeirra við hlutfall óvinnufærni.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Ef þú verður óvinnufær, 50% eða meira getur þú sótt um að fá iðgjöld tryggingarinnar lækkuð eða felld niður. Niðurfelling iðgjalda getur að hámarki varað í 5 ár og miðast niðurfelling þeirra við hlutfall óvinnufærni.

Tryggingamál getur verið flókið. Til að gera okkur meira skiljanlegri höfum við tekið saman allar helstu upplýsingar um trygginguna í upplýsingaskjal sem hægt er að skoða með skilmálum.

Þú getur gengið frá líf- og sjúkdómatryggingu, sem er sérsniðin að þínum skuldbindingum, á örfáum mínútum. Eftir hverju ert þú að bíða?
Fyrst þú ert að kynna þér líf- og heilsutryggingar þá gætir þú jafnframt haft áhuga á eftirfarandi tryggingum.
Sjúkdómatrygging veitir þér og fjölskyldu þinni fjárhagslega vernd komi til alvarlegra veikinda sem tryggingin tekur til.
Þú ákveður bótafjárhæð sjúkdómatryggingarinnar. Best er að fjárhæðin taki mið af tekjum þínum, skuldum og fjölskylduaðstæðum. Tryggingin þarf helst að geta bætt ígildi 2-3 ára nettólauna til viðbótar við samningsbundin réttindi launþega í veikindum. Þú getur hækkað vátryggingafjárhæðina ef þú eignast barn, ættleiðir barn eða kaupir íbúðahúsnæði án þess að skila inn nýjum heilsufarsupplýsingum.
Sjúkdómatrygging er flestum nauðsynleg óháð fjölskylduaðstæðum vegna þess að alvarleg veikindi gera ekki boð á undan sér.
Bætur sjúkdómatryggingar eru greiddar út í formi eingreiðslu og eru undanþegnar tekjuskatti. Aðeins er greitt einu sinni úr hverjum bótaflokki fyrir sig.
Sjúkdómatrygging greiðir þér bætur ef þú greinist með tiltekinn sjúkdóm. Hún gerir þér kleift að endurskipuleggja líf þitt og einbeita þér að ná heilsu á ný án þess að hafa áhyggjur af fjárhag heimilisins. Sjúkdómar sem falla undir sjúkdómatrygginguna eru taldir upp á upplýsingaskjali og í skilmálum tryggingarinnar.
Þeir sjúkdómar sem tryggingin tekur til eru flokkaðir í fimm bótaflokka;
Heilaáfall, lömun og málstol
Krabbamein
Tauga- og hrörnunarsjúkdóma
Hjarta og æðasjúkdómar
Aðra alvarlega sjúkdóma
Nánari útlistun má nálgast á upplýsingaskjali tryggingarinnar eða í skilmálum.
Einstaklingar á aldrinum 18-59 geta sótt um sjúkdómatryggingu og er gildistími hennar til 70 ára aldurs.
Bæturnar greiðast um tveimur vikum eftir að öll nauðsynleg og fullnægjandi gögn hafa borist tryggingafélaginu.
Sjúkdómatryggingin gildir hvar sem er í heiminum.
Iðgjaldafrelsi er viðbótarvernd inn í sjúkdómatryggingunni sem hægt er að velja á umsókn.
Það þýðir að ef þú verður óvinnufær, 50% eða meira getur þú sótt um að fá iðgjöld tryggingarinnar lækkuð eða felld niður. Niðurfelling iðgjalda getur að hámarki varað í 5 ár og miðast niðurfelling þeirra við hlutfall óvinnufærni.
Nánari skilgreiningu á iðgjaldafrelsi má finna í skilmála sjúkdómatryggingarinnar.
Iðgjald sjúkdómatryggingar tekur mið af vátryggingarfjárhæð og aldri. Við mat á henni er m.a. horft til aðstæðna þinna, s.s. til fjölskyldustærðar, fjárskuldbindinga og hversu lengi þú nýtur launatekna í veikindum. Þá geta ýmsir heilsufars- og lífsstílsþættir haft áhrif á iðgjaldið.
Hér má sjá til viðmiðunar þær reglur sem áhættumat er unnið eftir: