Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.

Neyðaraðstoð vegna ofbeldis í nánu sambandi var bætt við allar heimilistryggingar Varðar á árinu. Með því viljum við efla öryggi og stuðning fyrir þolendur, auk þess að auka vitund um einkenni ofbeldis og viðeigandi viðbrögð. Fræðsluefni á heimasíðu okkar styður einstaklinga, vinnustaði og samfélagið í heild að taka þátt í baráttunni gegn ofbeldi.
Meðgönguvernd var bætt við sjúkdómatryggingar Varðar til að styðja einstaklinga á einu mikilvægasta tímabili lífsins. Verndin er ætlað að draga úr fjárhagslegu álagi og auka öryggi og vellíðan á meðgöngu. Samhliða leggjum við áherslu á fræðslu og vitund sem stuðlar að betri upplifun og stuðningsríku umhverfi fyrir verðandi foreldra.
Á sama tíma var sálfræðiaðstoð í barnatryggingum framlengd til 26 ára aldurs og fjárhæð dánarbóta barna í líftryggingum hækkuð, með það að markmiði að veita einstaklingum og fjölskyldum aukinn stuðning þegar mest á reynir.


Á árinu lagði Vörður aukna áherslu á fræðslu fyrir konur um mikilvægi trygginga og fjárhagslegs öryggis. Í samstarfi við Konur fjárfestum, fræðsluátak Arion banka, hafa forsvarskonur félagsins haldið erindi fyrir yfir 2.000 konur um tryggingar tengdar heilsu, fasteignum og fyrirtækjarekstri. Með þátttöku í verkefninu viljum við efla fjármálalæsi og auka þekkingu á tryggingavernd.
Á árinu hélt Vörður áfram að efla fjölbreytileika og inngildingu með fræðslu, markvissum úrbótum á starfsumhverfi og auknum stuðningi við starfsfólk af erlendum uppruna. Meðal aðgerða voru starfstengt íslenskunám og aðgangur að smáforritinu Bara tala.


Vörður lagði ríka áherslu á forvarnir og öryggi, meðal annars með vitundarvakningu um hættur þreytu í umferðinni í samstarfi við Samgöngustofu og Eimskip. Herferðin „ekki geispa golunni“ fékk góðar viðtökur og jók vitund ökumanna um að aka ekki þreyttir. Jafnframt var unnið að fræðslu um hraðakstur, ölvunarakstur, bílbeltanotkun, eldvarnir og flugeldaslys.
Fyrirtækjum var einnig boðið upp á áhættumat og ráðgjöf um öryggismál, en þjónustan hefur fengið góðar undirtektir og áform eru um að fjölga forvarnarheimsóknum á komandi árum.