Tjón
Tjón

05.05.2026

Arion banki og Vörður opna úti­bú í Reykja­nes­bæ

Í dag, þann 5. maí 2026, opna Arion banki og Vörður nýtt útibú í Reykjanesbæ. Núverandi starfsemi Varðar í Krossmóa flyst í sameiginlegt húsnæði með Arion banka sem stendur við Aðalgötu 64. Aðgengi við Aðaltorg er einstaklega gott beint frá Reykjanesbraut og næg bílastæði verða fyrir utan útibúið.

Um er að ræða svokallað kjarnaútibú þar sem verður að finna fjölbreytta fjármála- og tryggingaþjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Útibúið er staðsett í þjónustukjarna á fyrstu hæð og starfa þar ellefu manns til að byrja með. Opnunartími er frá 9:00-16:00. Fólk á leið til útlanda getur keypt gjaldeyri hjá gjaldkera á opnunartíma útibúsins og eins verður þar gjaldeyrishraðbanki sem er opinn allan sólarhringinn. Svæðisstjóri er Einar Hannesson. Allt starfsfólk útibúsins er búsett á svæðinu og þekkir því vel til samfélagsins.

Einar Hannesson, svæðisstjóri einstaklinga í Reykjanesbæ:

„Opnunin markar viss tímamót hjá Arion banka því að við höfum ekki opnað nýtt útibú í langan tíma, svo að þetta er virkilega spennandi verkefni. Þá á Vörður sér langa sögu í Reykjanesbæ, enda höfum við verið með útibú í þessu öfluga sveitarfélagi síðan 1999. Við ætlum að láta fjármál og trygginga vinna saman og styðja við uppbyggingu og kröftugt atvinnulíf. Hér er mikil gróska og með auknum umsvifum Arion opnast ennþá fleiri tækifæri.

Við hlökkum til að taka á móti fólkinu á svæðinu, drekka með því kaffi og eiga góð samtöl um fjármál og tryggingar. Sjáumst á Aðaltorgi.“

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
7. október 2026

Er skynjari á vaktinni í bú­staðnum?

Að koma að eign sinni á floti er lífsreynsla sem við óskum engum. Leki sem er ekki stöðvaður í tæka tíð getur valdið mjög miklum skaða, ónýtum gólfefnum, vatnsmettuðum innréttingum og veggjum.

Lesa meira
6. október 2026

Eftir vel heppnuð skyndihjálparnámskeið bætast fleiri við í vor

Í síðustu viku stóð Vörður fyrir fjórum skyndihjálparnámskeiðum í samstarfi við Rauða krossinn. Námskeiðin voru haldin á þremur tungumálum og voru sérstaklega ætluð foreldrum og forráðamönnum barna.

Lesa meira
1. október 2026

Þekktu merkin: Opinn fræðslufundur 6. október

Vörður og Bjarkarhlíð halda opinn fræðslufund um birtingarmyndir ofbeldis í nánu sambandi og hvernig vinnustaðir geta þekkt merkin, brugðist rétt við og stutt þolendur. 

Fundurinn verður haldinn þriðjudaginn 6. október kl. 09:00 í Arion banka, Borgartúni 19. 

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð