Tjón
Tjón

01.08.2026

Vörður styrk­ir Kvenna­at­hvarfið

Vörður hefur gert styrktarsamning við Kvennaathvarfið næstu þrjú árin. Styrkurinn er liður í þeirri vegferð sem Vörður hefur verið á, þar sem aukin áhersla hefur verið lögð á velferð, öryggi og stuðning fyrir fólk í aðstæðum sem ekki hafa áður notið tryggingarverndar á Íslandi.

Má þar nefna neyðaraðstoð fyrir þolendur ofbeldis í nánum samböndum sem bætt var við hefðbundnar heimilistryggingar í fyrra og innleiðingu stuðningsleyfis fyrir starfsfólk sem glímir við erfiðar aðstæður vegna ofbeldis sem nýverið varð hluti af slysatryggingum launþega.

Kvennaathvarfið sinnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi með því að veita konum og börnum sem þurfa að flýja heimili sín vegna ofbeldis skjól, ráðgjöf og stuðning. Með stuðningnum vill Vörður leggja sitt af mörkum til þess mikilvæga starfs og styðja við það öryggisnet sem Kvennaathvarfið veitir.

Samstarfið endurspeglar þá sýn Varðar að samfélagsleg ábyrgð felist ekki aðeins í orðum heldur einnig í markvissum aðgerðum sem geta skipt raunverulegu máli þegar mest á reynir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
01. ágúst 2026

Vörður styrkir Kvennaathvarfið

Vörður hefur gert styrktarsamning við Kvennaathvarfið næstu þrjú árin. Styrkurinn er liður í þeirri vegferð sem Vörður hefur verið á, þar sem aukin áhersla hefur verið lögð á velferð, öryggi og stuðning fyrir fólk í aðstæðum sem ekki hafa áður notið tryggingarverndar á Íslandi.

Lesa meira
31. júlí 2026

Hættu­legasti tími ársins í um­ferðinni

Hjólhýsi og ferðavagnar taka á sig meiri vind en venjulegir fólksbílar og geta orðið óstöðug í hviðum, sérstaklega á opnum svæðum og brúm. Þess vegna er mikilvægt að fylgjast vel með spám frá Veðurstofu Íslands áður en lagt er af stað og vera tilbúin(n) að breyta áætlun ef aðstæður versna

Lesa meira
16. júní 2026

Vörður og Arion banki semja við Knatt­spyrnu­deild Kefla­vík­ur

Vörður og Arion banki hafa undirritað samstarfssamning við knattspyrnudeild Keflavíkur. Með samningnum vill Arion styðja við öflugt íþróttastarf á Suðurnesjum, en Arion banki og Vörður opnuðu nýlega nýtt útibú á Aðaltorgi í Reykjanesbæ þann 5. maí síðastliðinn.

Lesa meira
Fá tilboðTilkynna tjón