Tjón
Tjón

15.06.2026

Vörður og GSÍ kynna nýja út­gáfu af Reglu­verði

Regluvörður 2026, ný og endurbætt útgáfa af golfleik Varðar og Golfsambands Íslands, hefur litið dagsins ljós. Þar geta kylfingar bætt þekkingu sína á golfreglum á skemmtilegan hátt en þúsundir hafa spilað fyrri útgáfur.

Nýja útgáfa leiksins býður upp á betri leikjaupplifun og fleiri áskoranir. Hægt er að spreyta sig á hundruðum spurninga og safna stigum sem telja bæði fyrir einstakling og golfklúbb kylfingsins. Til að hljóta nafnbótina „Regluvörður 2026“ þarf að ná yfir 6.000 stigum í einum leik.

Stigahæsti golfklúbburinn verður krýndur sigurvegari þegar stigatalningu lýkur 20. ágúst nk. og jafnframt verður dregið úr hópi þeirra kylfinga sem hafa unnið sér inn nafnbótina „Regluvörður 2026”. Sigurvegarinn fær vikuferð fyrir fjóra til Villaitana á Spáni í samstarfi við Golfskálann, auk Golfverndar frá Verði í eitt ár.

Golfleiknum er jafnframt ætlað að vekja athygli á Golfvernd Varðar, sérsniðinni tryggingu fyrir kylfinga. Hún veitir vernd gegn óvæntum atvikum bæði innan sem utan golfvallar og gerir kylfingum meðal annars kleift að fagna almennilega með hollinu þegar draumahöggið verður að veruleika

Nýverið var samstarf Varðar og Golfsambands Íslands einnig endurnýjað í fjórtánda sinn. Það hófst með stuðningi við pappírsútgáfu reglubókar GSÍ en þróaðist í gerð leiksins Regluvarðar, sem kom fyrst út árið 2013 og hefur notið mikilla vinsælda. Vörður er einnig einn af aðalbakhjörlum afrekssjóðsins Forskots sem hefur það að markmiði að gera afrekskylfingum auðveldara að æfa og keppa við bestu mögulegu skilyrði í samræmi við það sem gerist á alþjóðlegum vettvangi.

Það er afar ánægjulegt að halda áfram þessu skemmtilega samstarfi við Golfsamband Íslands. Með því að leikjavæða reglubók GSÍ hefur okkur tekist að efla þekkingu þúsunda kylfinga á golfreglunum og leikurinn hefur notið mikilla vinsælda í gegnum árin. Það er gaman að geta nú bætt um betur með nýjum og uppfærðum leik. Eins og í lífinu öllu skiptir miklu máli að þekkja leikreglurnar, fara öllu með gát og að sjálfsögðu vera vel tryggð, líka á golfvellinum.

segir Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar.

Þekking á golfreglunum og góð háttsemi á vellinum er það sem við leggjum ávallt upp með í golfíþróttinni. Upplifun kylfinga verður bæði betri og skemmtilegri þegar þessir þættir eru til fyrirmyndar. Regluvörður er frábær leið til að efla þessa þekkingu á skemmtilegan hátt og við erum mjög ánægð með samstarfið við Vörð á verkefni sem þessu. Sterkur stuðningur bakhjarla eins og Varðar er stór þáttur í því að íslenskt golfsamfélag standi framarlega á alþjóðavísu.

segir Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. september 2026

Kolbrún Klara hreppti aðalvinninginn í ár

Kolbrún Klara Gísladóttir hlýtur aðalvinninginn og Golfklúbbur Ísafjarðar sigraði í stigakeppni milli golfklúbba.

Lesa meira
2. september 2026

Mikilvæg skilaboð til foreldra í upphafi skólaárs

Til að einfalda foreldrum lífið settum við saman viðbót á haustlistann sem fylgir upphafi á nýju skólaári hjá börnum, taska, pennaveski, húfa, vettlingar, og nokkur öryggisatriði áður en haldið er af stað í skólann.

Lesa meira
1. ágúst 2026

Vörður styður áfram mikilvægt starf Kvennaathvarfsins

Vörður hefur gert samstarfssamning við Kvennaathvarfið til næstu þriggja ára. Styrkurinn er liður í þeirri vegferð sem Vörður hefur verið á, þar sem aukin áhersla hefur verið lögð á velferð, öryggi og stuðning fyrir fólk í aðstæðum sem ekki hafa áður notið tryggingarverndar á Íslandi.

Lesa meira
Fá tilboðTilkynna tjón