Tjón
Tjón

01.08.2026

Vörður styður áfram mik­il­vægt starf Kvenna­at­hvarfsins

Vörður hefur gert samstarfssamning við Kvennaathvarfið til næstu þriggja ára.

Samstarfið er liður í þeirri vegferð sem Vörður hefur verið á, þar sem aukin áhersla hefur verið lögð á velferð, öryggi og stuðning fyrir fólk í aðstæðum sem ekki hafa áður notið tryggingarverndar á Íslandi. Má þar nefna neyðaraðstoð fyrir þolendur ofbeldis í nánum samböndum sem bætt var við hefðbundnar heimilistryggingar í fyrra og innleiðingu stuðningsleyfis fyrir starfsfólk sem glímir við erfiðar aðstæður vegna ofbeldis sem nýverið varð hluti af slysatryggingum launþega.

Kvennaathvarfið sinnir mikilvægu hlutverki í íslensku samfélagi með því að veita konum og börnum sem þurfa að flýja heimili sín vegna ofbeldis skjól, ráðgjöf og stuðning. Með stuðningnum vill Vörður leggja sitt af mörkum til þess mikilvæga starfs og styðja við það öryggisnet sem Kvennaathvarfið veitir.

Samstarfið endurspeglar þá sýn Varðar að samfélagsleg ábyrgð felist ekki aðeins í orðum heldur einnig í markvissum aðgerðum sem geta skipt raunverulegu máli þegar mest á reynir.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
4. nóvember 2026

Er mynstrið þitt nægi­lega djúpt?

Á þessum tíma árs á vetur konungur það til að mæta til leiks með látum og án mikils fyrirvara. Þegar þetta gerist þá er gott að þurfa ekki að róta í öllum hólfum bílsins í dauðaleit að rúðusköfu eða vera enn á sumardekkjum.

Lesa meira
2. nóvember 2026

Vörður og Arion styrkja Reykjalund um þrjár milljónir

Við hjá Verði og Arion banka erum stolt af því að starfa með fjölmörgum framúrskarandi fyrirtækjum um land allt. Í tilefni af viðurkenningu þeirra höfum við á undanförnum árum stutt við mikilvæg samfélagsverkefni í þeirra nafni.

Lesa meira
23. október 2026

Vörður aðalbakhjarl Körfuknattleiksdeildar Hattar

Vörður tryggingar og Körfuknattleiksdeild Hattar hafa gert með sér þriggja ára samstarfssamning. Samkvæmt samningnum verður Vörður aðalbakhjarl deildarinnar og mun heimavöllur Hattar jafnframt bera nafnið Varðarhöllin.

Lesa meira
Tilkynna tjónFá tilboð