Ferðatrygging í Heimilisvernd
Viðbót við Heimilisvernd sem veitir víðtæka vernd á ferðalögum erlendis og tekur á öllum helstu bótaþáttum sem þörf er á.

Viðskiptavinir okkar fá afslátt af ýmsum öryggisvörum
Við erum til staðar þegar þú þarft á tryggingum að halda.
Viðbót við Heimilisvernd sem veitir víðtæka vernd á ferðalögum erlendis og tekur á öllum helstu bótaþáttum sem þörf er á.

Á Mínum síðum getur þú sótt staðfestingu á ferðatryggingu hvort sem þú ert á leiðinni í ferðalag eða komin af stað í ferðalag.

Víðtækasta fjölskyldutryggingin í boði.

Alhliða vernd sem inniheldur allar helstu tryggingar sem nauðsynlegar eru fyrir heimili og fjölskyldu.

Uppfyllir grunnþarfir fjölskyldunnar á hagkvæman máta.
Einföld og örugg innbús- og ábyrgðartrygging í einum pakka fyrir þá sem ekki þurfa slysa- eða ferðatryggingar.
Tjón vegna tafa á afhendingu farangurs í áætlunar- eða leiguflugi í ferð sem varir allt að 92 samfellda daga.
Tjón vegna kaupa á nauðsynjum fyrir hvern tryggðan 18 ára og eldri ef þeir fá ekki afhentan farangurinn innan 8 klst.
Tjón vegna kaupa á nauðsynjum fyrir börn tryggingartaka yngri en 18 ára ef þau eru á ferðalagi með tryggingartaka.
Verði tafir á farangri á heimleið til Íslands.
Tjón á hinu vátryggða af völdum bruna, ráns, flutningaslyss svo og ef hið vátryggða týnist í flutningi.
Tjón á hinu vátryggða vegna innbrotsþjófnaðar úr læstum híbýlum, bifreiðum og bátum.
Peninga, farmiða, ferðatékka, ávísanir, skuldabréf né önnur verðbréf.
Brothætta hluti.
Skemmdir sem hljótast af mölflögum, meindýrum, ástandi andrúmslofts, veðráttu eða eðlilegu sliti.
Reiðhjól sem geymd eru utandyra.
Skemmdir á ferðatöskum.
Óhjákvæmilegan kostnað sem hlýst af því að vátryggður slasast, veikist eða deyr á ferðalagi erlendis s.s. sjúkrahúskostnað eða viðbótarkostnað vegna veikinda s.s. hótelkostnað.
Heimferðarkostnað, s.s. sjúkraflutningakostnað að læknisráði, breytingar á flugi og/eða sjúkraflug.
Viðbótarkostnað vegna heimferðar til Íslands vegna alvarlegra veikinda eða andláts nánustu ættingja.
Flutning á látnum einstakling.
Sjúkrakostnað sem verður á 9. mánuði meðgöngutíma, fæðingar eða fóstureyðingar.
Sjúkrakostnað vegna áframhaldandi sjúkrakostnaðar.
Lyfjakostnað vegna lyfja sem vátryggður notar reglulega áður en ferð hófst.
Ferðakostnað allt að tryggingarfjárhæð, sem greiddur er fyrirfram eða samið um greiðslu á og ekki fæst endurgreiddur.
Tjón ef tryggður eða nákomnir s.s. maki, barn eða foreldrar, verða fyrir alvarlegu slysi, skyndilegum veikindum, líkamsmeiðslum eða öðrum sambærilegum atburðum sem staðfestir eru af lækni með læknisvottorði um að viðkomandi sé ekki ferðafær.
Forföll vegna hvers kyns veikinda eða sjúkdóma sem voru til staðar áður en tryggingin var tekin eða þegar staðfestingargjald var greitt.
Forföll sem verða vegna sjúkdóma sem verða eftir 36. viku meðgöngu.
Forföll eða kostnað vegna kynsjúkdóma.
Forföll vegna meiðsla sem menn valda sér sjálfir eða tjón sem tryggður hefur sjálfur.